Þriðjudagsklassík - María Magnúsdóttir o.fl.
Fyrstu tónleikarnir verða haldnir þriðjudaginn 8. janúar kl. 20 í sal Tónlistarskóla Garðabæjar.
Tónleikaröðin Þriðjudagsklassík í Garðabæ er nú haldin í sjötta sinn. Þrennir tónleikar verða haldnir frá janúar til mars 2019, annan þriðjudag í mánuði. Að þessu sinni er Þriðjudagsklassík í samstarfi við KÍTÓN, félag kvenna í tónlist og gaman að geta þess að allir flytjendur eru virkir félagsmenn í KÍTÓN.
Fyrstu tónleikarnir á vorönn 2019:
Þriðjudaginn 8. janúar kl. 20:00 - Íslensk lög og þekktir djass-standardar
María Magnúsdóttir, söngur. María er bæjarlistamaður Garðabæjar 2018.
Sara Mjöll Magnúsdóttir, píanó
Sigmar Þór Matthíasson, bassi
Viðburður á facebook
Það er bæjarlistamaður Garðabæjar 2018, María Magnúsdóttir, djasssöngkona, sem ríður á vaðið á fyrstu tónleikum ársins. Með Maríu leika þau Sara Mjöll Magnúsdóttir, píanóleikari og Sigmar Þór Matthíasson, bassaleikari. Á efnisskrá eru ástsæl íslensk sönglög í léttum djassbúningi auk uppáhalds djass-standara tónlistarmannanna. Það verður létt og notaleg stemning í sal Tónlistarskóla Garðabæjar nk. þriðjudagskvöld.
María stundaði grunnskólagöngu sína í Garðabæ og steig sín fyrstu "tónlistarskref" í Skólakór Garðabæjar og í Tónistarskóla Garðabæjar. Hún lauk burtfarar- og kennaraprófi frá Tónlistarskóla FÍH og stýrði m.a. Gospelkór Jóns Vídalíns, Gospelkór Árbæjarkirkju og Sönghóp Garðaskóla. Framhaldsnám stundaði María í Konunglega listaháskólanum í Den Haag. Þaðan lá leiðin til London þar sem María lauk gráðunni Master of Popular Music með áherslu á hljóðupptökur og tónsmíðar fyrir miðla.
María hefur komið víða við í tónlist og sungið m.a. á Jazzhátíð Reykjavíkur, Jazzklúbbi Múlans , sumartónleikaröð Jómfrúnnar og á Jazzhátíð Garðabæjar. Sl. ár hefur hún komið fram undir listamannsheitinu MIMRA. Fyrsta plata MIMRU kom út í október 2017 og ber heitið Sinking Island.
María starfar nú sem söng- og lagasmíðakennari við Tónlistarskóla FÍH, Menntaskólann í tónlist og við Listaháskóla Íslands.
Næstu tónleikar verða 12. febrúar nk. og bera heitið Franskir flaututónar. Það eru þær Emilía Rós Sigfúsdóttir, flautuleikari og Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanóleikari sem leika verk eftir Saint-Saens, Gabriel Faure og C. Goddard.
Þriðju og síðustu tónleikarnir 12. mars bera heitið Á norðurslóðum en þar kemur tónlistarhópurinn UMBRA fram og flytur eigin útsetningar á norrænum þjóðlögum.
Allir tónleikar í tónleikaröðinni Þriðjudagsklassík fara fram í sal Tónlistarskóla Garðabæjar við Kirkjulund 11 og standa yfir í um klukkustund. Aðgangseyrir er 2000 kr. og er miðasala við innganginn.
Að tónleikunum standa menningar- og safnanefnd Garðabæjar en listrænn stjórnandi er Ingibjörg Guðjónsdóttir.
Þriðjudagsklassík á facebook