• 2.11.2022, 12:15 - 12:55, Tónlistarskóli Garðabæjar

Tónlistarnæring: Seiðandi tónar á hádegistónleikum

  • Tónlistarnæring

Miðvikudaginn 2. nóvember kl. 12:15 verða haldnir hádegistónleikar í sal Tónlistarskóla Garðabæjar við Kirkjulund. Ókeypis aðgangur.

Margrét Hrafnsdóttir sópransöngkona, Þórarinn Sigurbergsson gítarleikari, Þorgrímur Jónsson bassaleikari og Pétur Valgarð Pétursson gítarleikari flytja seiðandi tóna suðrænnar tónlistar. Töfrandi gítarlínur, lokkandi söngur og jarðtengdur bassinn flytja lög eftir Sunny Skylar, Luiz Bonfa og Joaquin Rodrigo en lögin eru í útsetningu Þórarins, Þorgríms og Péturs Valgarðs.

Tónleikarnir eru liður í röðinni Tónlistarnæring sem menningar- og safnanefnd Garðabæjar kostar í samstarfi við Tónlistarskóla Garðabæjar.
Listrænn stjórnandi er Ólöf Breiðfjörð.

Viðburður á facebook