• 2.10.2024, 12:15 - 12:45, Tónlistarskóli Garðabæjar

Tónlistarnæring: Tríó Elegía

Tríó Elegía er skipað Svöfu Þórhallsdóttur sópran, Berglindi Stefánsdóttur flautuleikara og Hrönn Þráinsdóttur píanóleikara en þær stöllur færa gestum Tónlistarnæringu dagsins.

Á efnisskrá Tónlistarnæringar að þessu sinni eru aríur og sönglög í eigin útsetningum Tríó Elegíu eftir tónskáld á borð við Bizet, Massenet, Saint-Saëns og Lehár. Aðalþema tónleikanna er ástin og hvernig hún birtist á fjölbreyttan hátt. Einnig munu þær Svafa, Berglind og Hrönn flytja norræn sönglög þar sem töfrar náttúrunnar og hin norræna melankólía fléttast saman í brostnum draumum og þrám. Tónleikarnir eru 30 mínútna langir.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.