• 4.1.2023, 12:15 - 12:45, Tónlistarskóli Garðabæjar

Tónlistarnæring: Tríó Sól

  • Fyrstu hádegistónleikar ársins -Tríó Sól

Tríó Sól með fyrstu Tónlistarnæringu nýs árs á hádegistónleikum í Tónlistarskóla Garðabæjar. 

Tónleikarnir verða haldnir í sal Tónlistarskóla Garðabæjar að Kirkjulundi miðvikudaginn 4. janúar kl.12:15-12:45. 
Viðburður á facebook

Fiðluleikararnir María Emilía Garðarsdóttir og Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir ásamt víóluleikaranum Þórhildi Magnúsdóttur skipa Tríó Sól. Allar eru þær í framhaldsnámi í Kaupmannahöfn. Tríóið lék á Þjóðlagahátíð á Siglufirði sumarið 2022 og vakti frábær hljóðfæraleikur og skemmtileg sviðsframkoma verðskulda athygli. Á tónleikunum flytur Tríó Sól Rapsódíu eftir Frank Bridge og Tríósónötu eftir Arcangelo Corelli í útsetningu Sólrúnar Ylfu.

Aðgangur er ókeypis.
Tónlistarnæring er röð hádegistónleika sem fer fram fyrsta miðvikudag í mánuði í sal Tónlistarskóla Garðabæjar.
Listrænn stjórnandi er Ólöf Breiðfjörð menningarfulltrúi