• 10.10.2022, 15:00 - 17:00, Fjarfundur

Vörðum leiðina saman

  • Vörðum leiðina saman

Samráðsfundur með íbúum höfuðborgarsvæðisins um samgöngur, sveitarstjórnarmál og húsnæðis- og skipulagsmál verður haldinn mánudaginn 10. október nk.

Í október býður innviðaráðuneytið, í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman.

Fundur fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins verður haldinn í gegnum fjarfundarbúnaðinn TEAMS
mánudaginn 10. október kl. 15-17.

Tilgangur samráðsfundanna er að gefa íbúum og sveitarstjórnarfólki um land allt tækifæri til að hafa áhrif á stefnumótun í nokkrum helstu málaflokkum ráðuneytisins. Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkunum. Meginviðfangsefni fundanna verða umræður um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og skipulagsmálum. Einnig verður fjallað um nýsamþykkta byggðaáætlun.

Við hvetjum íbúa til að taka þátt í fjarfundinum sem haldinn er í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams.

Skráning er á vef Stjórnarráðsins.
Þátttakendur fá boð í tölvupósti til að tengja sig á fundinn.
Skráningu lýkur kl. 10 að morgni mánudags 10. október.

Sjá nánar á www.stjornarrad.is/vordumleidinasaman