• 3.3.2021 - 31.3.2021, Bókasafn Garðabæjar

Vorið nálgast - myndlistarsýning á Bókasafninu

  • Listamenn mars mánuðar á Bókasafni Garðabæjar

Listamenn marsmánaðar á Bókasafni Garðabæjar í samstarfi við Grósku, félags myndlistarmanna í Garðabæ, eru Ingunn Jensdóttir og Gunnar Júlíusson.

Samsýning þeirra ber heitið „Vorið nálgast“ Sýningin hefst miðvikudaginn 3. mars og er til 31. mars á Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi 7.
Sjá viðburð á fésbókarsíðu Bókasafnsins.
Vefur Bókasafns Garðabæjar.

Ingunn Jensdóttir hefur numið myndlist víða. Meðal annars nam hún teikningu í Kaupmannahöfn, vatnslitamálun og olíumálun lærði hún í Myndlistarskóla Kópavogs og hefur setið Master Class námskeið hjá Bjarna Sigurbjörnssyni.
Ingunn hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum.

Gunnar Júlíusson er grafískur hönnuður, myndskreytir og skopmyndateiknari, en nú á síðari árum hefur hann einbeitt sér að list í ýmsum öðrum miðlum og hefur þá aðallega unnið með kol og pastel á gamalt timbur. Einnig málar hann verk í tölvu sem eru prentuð á stórar álplötur. Hann vinnur einnig með olíu og akrýl á striga, vatnsliti og gluggafilmur.
Hann hefur verið með nokkrar einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum.
Sýningin er opin á opnunartíma safnsins.