Útilistaverk í Garðabæ

Táknatréð

  • Við Urriðaholtsstræti. 
  • Höfundar: Gabríela Friðriksdóttir, Mathias Augustyniak og Michael Amzalag. 
  • Afhjúpað 19. maí 2008. 

Bjargfesta

  • Við Skólabraut. 
  • Höfundur Sigurður Guðmundsson. 
  • Afhjúpað 26. september 1997. 
  • Höfundur nafns Ásta Lind Hannesdóttir, nemandi í Hofsstaðaskóla.

Hönnun

  • Milli Silfurtúns og Hafnarfjarðarvegar. 
  • Höfundur Magnús Tómasson. 
  • Afhjúpað 2001. 
  • Verkið var keypt eftir samsýningu listamanna í tilefni af 25 ára afmæli Garðabæjar.

Í mótun

  • Á Garðatorgi. 
  • Höfundur Sigrún Guðmundsdóttir. 
  • Afhjúpað 20. nóvember 1988 (við Sveinatungu). 
  • Efni sedrusviður. 
  • Gefandi Kvenfélag Garðabæjar.

Landslag

  • við gatnamót Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar. 
  • Höfundur: Brynhildur Þorgeirsdóttir.
  • Afhjúpað 1997.

Samspil

  • í Búðakinn við Reykjanesbraut. 
  • Höfundur Pétur Bjarnason. 
  • Afhjúpað 1998. 
  • Gefendur eru Héðins-fyrirtækin (Héðinn-Smiðja hf, Héðinn-verslun hf og Garðastál hf) í tilefni af 75 ára afmæli þeirra.

Serenada

  • Milli Silfurtúns og Hafnarfjarðarvegar.
  • ,,Serenada" (kvöldljóð)
  • Höfundur Helgi Gíslason.
  • Afhjúpað 2001. 
  • Verkið var keypt eftir samsýningu listamanna í tilefni af 25 ára afmæli Garðabæjar.

Uppsprettan

  • Við Vídalínskirkju. 
  • Höfundur Pétur Bjarnason. 
  • Afhjúpað 1995. 
  • Efni brons.

Við Ægisdyr

  • Vestan við Garðaskóla. 
  • Höfundur Pétur Bjarnason. 
  • Afhjúpað 1993. 
  • Efni kortin-stál.

Þrenning

  • Við Garðaskóla. 
  • Höfundur Sigurjón Ólafsson 1970. 
  • Afhjúpað 25. maí 1990. 
  • Erlingur Jónsson stækkaði verkið.

Wegener-stöpullinn

Steinstöpull á Arnarneshæðinni reistur vorið 1930.  Steinstöpullinn er reistur af þýska veðurfræðingnum Alfred Wegener (1880-1930) í aprílmánuði árið 1930. Stöpullinn var reistur ásamt fleiri stöplum með það fyrir augum að færa sönnur á landrekskenninguna sem Wegener setti fram á árunum 1908-1912.  
Árið 2000 var steinstöpullinn endurgerður og umhverfið í kring gert meira aðlaðandi.