Fundargerðir

Til baka Prenta
Skipulagsnefnd Garðabæjar - 4

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi,
26.02.2026 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Björg Fenger formaður,
Kjartan Vilhjálmsson aðalmaður,
Sigþrúður Ármann varamaður,
Baldur Ólafur Svavarsson aðalmaður,
Guðlaugur Kristmundsson aðalmaður,
Hlynur Elías Bæringsson áheyrnarfulltrúi,
Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri, Anna Guðrún Gylfadóttir byggingarfulltrúi, Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs.
Fundargerð ritaði: Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri
Formaður skipulagsnefndar óskaði eftir því að eitt mál yrði tekið á dagskrá sem ver ekki hluti af fundarboði. Það er fundarliður númer 11 í þessari fundargerð. Samþykkt.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1903374 - Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 að lokinni forkynningu ásamt innkomnum ábendingum og umsögnum. Tillagan nær til Norðurness á Álftanesi. Lögð fram greinargerð þar sem að ábendingar hafa verið flokkaðar eftir efnisatriðum. Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
2. 1803108 - Norðurnes Álftaness, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi að lokinni forkynningu ásamt innkomnum ábendingum og umsögnum. Lögð fram greinargerð þar sem að ábendingar hafa verið flokkaðar eftir efnisatriðum. Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
3. 2406836 - Miðbær, svæði I og II, Garðatorg 1, deiliskipulagsbreyting.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðbæjar, svæði I og II að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Lögð fram greinargerð umhverfissviðs þar sem athugasemdir hafa verið flokkaðar eftir efnisatriðum. Umhverfissvið hefur verið með málið til skoðunar.
Skipulagsnefnd óskar eftir því að eftirfarandi atriði verði skoðuð nánar:
-Tenging Hrísmóa við Bæjarbraut m.t.t. hljóðvistar og öryggis.
-Útfærsla á aðkomu að fjölbýlishúsum í Hrísmóum.
-Að sett verði ákvæði í deiliskipulagi sem tekur á áhrifum framkvæmda á aðliggjandi byggingar m.t.t. sprengivinnu og framkvæmdatíma.
-Að útfærsla á bílastæðum og göngutenginum verði skoðuð við Kirkjulund 14.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði með ofangreindum óskum.
4. 1405080 - Móar, endurskoðað deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Móa að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Lögð fram greinargerð umhverfissviðs þar sem athugasemdir hafa verið flokkaðar eftir efnisatriðum. Umhverfissvið hefur verið með málið til skoðunar.
Skipulagsnefnd óskar eftir því að eftirfarandi atriði verði skoðuð nánar:
-Tenging Hrísmóa við Bæjarbraut m.t.t. hljóðvistar og öryggis.
-Útfærsla á aðkomu að fjölbýlishúsum í Hrísmóum.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði með ofangreindum óskum.
5. 2507363 - Krókamýri 14 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að Krókamýri 14 sem gerir ráð fyrir viðbyggingu við húsið til austurs að lokinni grenndarkynningu. Húsið er parhús og liggur fyrir yfirlýsing meðeigenda að þau geri ekki athugasemd við útfærsluna. Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Mýrum. Skipulagsnefnd vísaði umsókn um byggingarleyfi til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn
6. 2602297 - L215102 - Hlaðan - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn eigenda "Spildu A úr landi Gru" um hugmynd að nýju heiti eignar. Lagt er til heitið Hlaðan.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna og vísar henni til úrvinnslu tillögu að deiliskipulagi Norðurness.
7. 2601487 - Suðurhraun 10 - Deiliskipulagsbreyting
Sigríður Ólafsdóttir arkitekt gerði grein fyrir umsókn að breytingu deiliskipulags Molduhrauns.
Vísað til umhverfissviðs og deiliskipulagsráðgjafa .
8. 2510094 - Vetrarmýri - Dsk.br. - Skólalóð
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir frumskoðun á fyrirhugaðri grunnskólalóð við rætur Hnoðraholts.
9. 2602329 - Breyting á deiliskipulagi Suðurhafnar vegna Óseyrarbrautar 26 - ósk um umsögn
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.
10. 2602392 - Nýbýlavegur 1 - breyting á aðalskipulagi, nr. 0076/2026: Lýsing (Breyting á aðalskipulagi)
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við lýsinguna.
11. 2512238 - Votakur 3 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akra sem nær til lóðarinnar Votakur 3 að lokinni grenndarkynningu. Gert er ráð fyrir stækkun ytri byggingarreits til vesturs þar sem heimilt yrði að stækka kjallara og útbúa svalir ofan á viðbyggingu.
Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting á deiliskipulagi Akra.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til baka Prenta

Fylgigögn eru birt með fundargerðum:

  • bæjarráðs, frá og með 12. fundi 2015
  • skólanefndar grunnskóla frá og með 14. fundi 2015
  • mannréttinda- og forvarnanefndar frá og með 16. fundi 2015
  • umhverfisnefndar frá og með 18. fundi 2015
  • leikskólanefndar frá og með 15. fundi 2015
  • menningar- og safnanefndar frá og með 12. fundi 2015
  • íþrótta- og tómstundaráðs frá og með 14. fundi 2015

Reglur um birtingu gagna með fundargerðum (sjá reglur undir stjórnsýslu).