Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð Garðabæjar - 44. (2192)

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi,
02.12.2025 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Björg Fenger formaður,
Sigríður Hulda Jónsdóttir varaformaður,
Hrannar Bragi Eyjólfsson aðalmaður,
Þorbjörg Þorvaldsdóttir aðalmaður,
Brynja Dan Gunnarsdóttir aðalmaður,
Arnar Hólm Einarsson varaáheyrnarfulltrúi,
Almar Guðmundsson bæjarstjóri, Lúðvík Örn Steinarsson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Svanhildur Þengilsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Linda Udengård sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs, Ágúst Þór Guðmundsson sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs, Ásta Sigrún Magnúsdóttir samskiptastjóri.
Fundargerð ritaði: Almar Guðmundsson, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2507256 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026 - 2029)
Farið yfir tillögur um álagningu fasteignaskatts og þjónustugjalda ásamt tillögum um breytingar við frumvarp að fjárhagsáætlun sem verða til afgreiðslu við síðari umræðu um fjárhagsáætlun á fundi bæjarstjórnar 4. desember nk.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
2. 2106434 - Bakkaflöt 12 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Elísabetu Björnsdóttur, kt. 161268-8299, leyfi fyrir saunu á lóð og breytingu á rýmum að Bakkaflöt 12.
3. 2510267 - Draumahæð 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurfinni Sigurjónssyni, kt. 100561-3449, leyfi til að byggja kvist á suðurhlið hússins að Draumahæð 2.
4. 2510268 - Draumahæð 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Þórði Eggert Viðarssyni, kt. 071263-2239, leyfi til að byggja kvist á suðurhlið hússins að Draumahæð 4.
5. 2510269 - Draumahæð 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Magnúsi Pálma Skúlasyni, kt. 170775-4819, leyfi til að byggja kvist á suðurhlið hússins að Draumahæð 6.
6. 2507444 - Garðprýði 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Arnari Þórarni Barðdal, kt. 250572-5309, leyfi fyrir byggingu einbýlishúss að Garðprýði 4.
7. 2504195 - Samstarfsyfirlýsing um EXIT.
Lagt fram minnisblað Ríkislögreglustjóra og drög að samstarfsyfirlýsingu um EXIT - leið úr afbrotum. Um er að ræða þverfaglegt samstarf milli lögreglu, fangelsisyfirvalda, sveitarfélaga o.fl. sem byggist á þeirri sameiginlegu sýn að draga úr ítrekun afbrota, efla samfélagsöryggi og stuðla að heildrænni nálgun á afbrotavarnir, endurhæfingu og félagslega aðlögun.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til úrvinnslu á velferðarsviði.
8. 2503125 - Framtíðarstaðsetning þjónustumiðstöðvar Garðabæjar.
Fyrir liggur þarfagreining umhverfissviðs vegna aðstöðu fyrir Þjónustumiðstöð Garðabæjar. Við nánari rýni þarfagreiningarinnar er metið að hagfelldasti kosturinn sé lóðin að Garðahrauni 1. Þar er um að ræða staðsetningu við fyrirhugaðan Álftanesveg með tengingu til austurs og vesturs. Stærð lóðarinnar er 1,5 hektari. Engin bygging er á lóðinni og byggingarreitur er 8.600 fermetrar.
Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra umboð til viðræðna við lóðarhafa, ÞR Þróun ehf., um möguleg uppbyggingaráform þjónustumiðstöðvar Garðabæjar á lóðinni.
9. 2511519 - Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi í skötuveislu Lionsklúbbs Álftaness í íþróttahúsinu Breiðumýri 27. desember.
Lögð fram umsókn Lionsklúbbs Álftaness um tækifærisleyfi til áfengisveitinga í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi í tilefni af skötuveislu á Þorláksmessu 23. desember 2025.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
10. 2511520 - Styrkbeiðni ADHD samtakanna, dags. 26.11.25.
Lögð fram beiðni ADHD samtakanna um fjárstyrk.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til baka Prenta

Fylgigögn eru birt með fundargerðum:

  • bæjarráðs, frá og með 12. fundi 2015
  • skólanefndar grunnskóla frá og með 14. fundi 2015
  • mannréttinda- og forvarnanefndar frá og með 16. fundi 2015
  • umhverfisnefndar frá og með 18. fundi 2015
  • leikskólanefndar frá og með 15. fundi 2015
  • menningar- og safnanefndar frá og með 12. fundi 2015
  • íþrótta- og tómstundaráðs frá og með 14. fundi 2015

Reglur um birtingu gagna með fundargerðum (sjá reglur undir stjórnsýslu).