Fundargerðir

Til baka Prenta
Umhverfisnefnd Garðabæjar - 18 (22-26)

Haldinn í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi,
12.06.2024 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Stella Stefánsdóttir formaður,
Eiríkur Þorbjörnsson aðalmaður,
Einar Þór Einarsson aðalmaður,
Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs, Linda Björk Jóhannsdóttir verkefnastjóri, Egill Daði Gíslason deildarstjóri umhverfis og framkvæmda.
Fundargerð ritaði: Linda Björk Jóhannsdóttir, verkefnastjóri umhverfismála
Einnig sat fundinn Guðjón Pétur Lýðsson.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2311400 - Hjólreiðaáætlun Garðabæjar
Þráinn Hauksson, hjá Landslagi kynnir drög að hjólreiðaáætlun Garðabæjar
Þráinn Hauksson, hjá Landslagi kynnti drög að hjólreiðastefnu Garðabæjar. Umhverfisnefnd fagnar þessari vinnu.
2. 2406314 - Vorhreinsun lóða 2024
Sigurður Hafliðason, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar kynnir minnisblað vorhreinsun lóða 2024.
Sigurður Hafliðason, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar fór yfir hvernig vorhreinsun lóða gekk. Vorhreinsun lóða fór fram dagana 8.-21. maí með breyttu fyrirkomulagi. Ríflega 30 gámum var komið fyrir um bæinn til að taka á móti garðaúrgangi sem íbúar komu sjálfir í gámana. Í heildina gekk vorhreinsunin vel og íbúar voru duglegir að nýta sér gámana. Gámarnir voru losaðir 121 sinnum. Umhverfisnefnd felur umhverfissviði að meta kosti og galla af breyttu fyrirkomulagi.
3. 2402172 - Hreinsunarátak 2024
Árlegt hreinsunarátak var haldið dagana 22. apríl - 6. maí. Þrjátíu og fimm hópar fengu úthlutuð svæði til að hreinsa í nærumhverfi sínu. Umhverfisnefnd vill koma fram þökkum til allra þeirra sem tóku þátt.
4. 2406274 - Samgönguvika 2024
Frá árinu 2002 hafa borgir og bæir á Íslandi tekið þátt í samstilltu átaki sveitarfélaga í Evrópu um að ýta undir sjálfbærar samgöngur. Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft.

Samgönguvika er haldin dagana 16. - 22. september ár hvert.
Bíllausi dagurinn verður haldinn sunnudaginn 22. september

- Aðgerðir í samgönguviku eiga að stuðla að hvatningu til íbúa um allt land til að nýta virkar samgöngur í samgönguvikunni og vekja meðvitund um kosti á nýtingu þeirra til langframa.
- Gera sýnilega hina ýmsu möguleika á virkum samgöngum.
- Stuðla að umfjöllun og viðburðum sem almenningur getur tekið þátt í.
- Styrkja umræðu um virkar samgöngur í hvaða formi sem þær eru.

Samgönguvika kynnt. Verður til nánari skoðunar hjá umhverfissviði.
5. 1603091 - Trjágróður á lóðamörkum
Garðyrkjustjóri hvetur lóðarhafa til að huga að gróðri á lóðarmörkum. Trjá- og runnagróður sem vex út fyrir lóðarmörk eða slútir yfir getur þrengt að umferð á götum, gangstéttum eða stígum og getur hindrað snjómokstur á gangstéttum og stígum. Árleg könnun garðyrkjudeildar á trjágróðri á lóðarmörkum kynnt.
6. 2405041 - Snyrtilegt umhverfi 2024
Umhverfisnefnd leggur til að óskað verði eftir ábendingum íbúa vegna: snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis, snyrtilegar lóðir fyrirtækis, snyrtileg opin svæði, snyrtilega götu ásamt ábendingum fyrir framlag til umhverfismála.



7. 2406226 - Árangur af aðgerðum SORPU árið 2023
Lagt fram. Umhverfisnefnd fagnar góðum árangri.
8. 2405195 - Ársskýrsla Skógræktarfélags Reykjavíkur 2023
Lagt fram.
9. 2406263 - Kiwanis klúbburinn Eldey - beiðni um afnot að hluta Vífilsstaðalækjar
Lagt fram. Málinu vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til baka Prenta

Fylgigögn eru birt með fundargerðum:

  • bæjarráðs, frá og með 12. fundi 2015
  • skólanefndar grunnskóla frá og með 14. fundi 2015
  • mannréttinda- og forvarnanefndar frá og með 16. fundi 2015
  • umhverfisnefndar frá og með 18. fundi 2015
  • leikskólanefndar frá og með 15. fundi 2015
  • menningar- og safnanefndar frá og með 12. fundi 2015
  • íþrótta- og tómstundaráðs frá og með 14. fundi 2015

Reglur um birtingu gagna með fundargerðum (sjá reglur undir stjórnsýslu).