Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð Garðabæjar - 7. (2202)

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi,
24.02.2026 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Björg Fenger formaður,
Sigríður Hulda Jónsdóttir varaformaður,
Hrannar Bragi Eyjólfsson aðalmaður,
Þorbjörg Þorvaldsdóttir aðalmaður,
Brynja Dan Gunnarsdóttir aðalmaður,
Guðlaugur Kristmundsson áheyrnarfulltrúi,
Almar Guðmundsson bæjarstjóri, Lúðvík Örn Steinarsson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Svanhildur Þengilsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Linda Udengård sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs, Ágúst Þór Guðmundsson sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs, Guðný Hrönn Antonsdóttir samskipta- og kynningarfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Lúðvík Örn Steinarsson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2512120 - Öryggismyndavélar í Garðabæ.
Sviðstjóri þjónustu- og þróunarsviðs kynnti notkun öryggismyndavéla í Garðabæ. Myndavélum hefur verið komið fyrir við undirgöng í bænum, sem var verkefni unnið í samráði við lögregluna. Undanfarið hefur myndavélum fjölgað um þrjár við undirgöng auk þriggja löggæslumyndavéla. Nú stendur yfir samráð við lögreglu um fyrirkomulag og staðsetningu fleiri öryggismyndavélar.
2. 2510125 - Skógarprýði 6 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita A210 ehf., kt. 640725-1090, leyfi fyrir einbýlishúsi á einni hæð með innbyggðri bílgeymslu að Skógarprýði 6.
3. 2602326 - Þorraholt 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að Þorraholti ehf., kt. 681218-0760, leyfi fyrir breytingu á innakstri í bílakjallara í öllum húsum Þorraholts 1A, 1B og 1C.
4. 2602286 - Umsagnarbeiðni vegna umsóknar UMF Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi á árshátíð Garðabæjar í Íþróttamiðstöðinni Mýrinni þann 14. mars 2026.
Lögð fram beiðni UMF. Stjörnunnar um tækifærisleyfi vegna áfengisveitinga á árshátíð Garðabæjar í íþróttahúsinu Mýrinni 14. mars 2026.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
5. 2602306 - Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Ísó veitinga ehf. um veitingaleyfi í Golfskála GKG.
Lögð fram beiðni Ísó veitinga efh. um leyfi til reksturs, veitingaleyfi í Flokki II - A veitingahús í fl.II í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
6. 2508513 - Ársreikningur Garðabæjar 2025 - tillaga um afskriftir.
Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna árið 2025 samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 461.580.-
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til baka Prenta

Fylgigögn eru birt með fundargerðum:

  • bæjarráðs, frá og með 12. fundi 2015
  • skólanefndar grunnskóla frá og með 14. fundi 2015
  • mannréttinda- og forvarnanefndar frá og með 16. fundi 2015
  • umhverfisnefndar frá og með 18. fundi 2015
  • leikskólanefndar frá og með 15. fundi 2015
  • menningar- og safnanefndar frá og með 12. fundi 2015
  • íþrótta- og tómstundaráðs frá og með 14. fundi 2015

Reglur um birtingu gagna með fundargerðum (sjá reglur undir stjórnsýslu).