|
| Almenn erindi |
| 1. 2008336 - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 5. Urriðaholt 5.04 Vþ. |
| Lögð fram tillaga breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem gerir ráð fyrir breytingu á ákvæðum um reit 5.04 Vþ í norðurhluta Urriðaholts. Gert er ráð fyrir að því að íbúðarbyggð sé heimil þó svo að megináhersla verði áfram á atvinnuhúsnæði. Miðað er við að íbúðarbyggð sé innan við 50% af heildarbyggingarmagni innan landnotkunarreitsins. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. |
|
|
|
| 2. 1811125 - Urriðaholt Norðurhluti 4 - deiliskipulag |
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta. Er hér um óbreytta tillögu að ræða frá fyrri auglýsingu. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. |
|
|
|
| 3. 1903374 - Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes |
| Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi að lokinni forkynningu í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ábendingar og umsagnir sem borist hafa lagðar fram. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði. |
|
|
|
| 4. 1803108 - Norðurnes Álftaness, deiliskipulag |
| Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi að lokinni forkynningu í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ábendingar og umsagnir sem borist hafa lagðar fram. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði. |
|
|
|
| 5. 1804367 - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030-Breyting 1-Vífilstaðaland-rammahluti. |
| Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030, ásamt umhverfisskýrslu, sem nær til Vífilsstaðalands að lokinni auglýsingu samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfisssviði. |
|
|
|
| 6. 1910294 - Rjúpnadalur, dsk kirkjugarðs og meðferðarstofnunar. |
| Lögð fram tillaga að deiliskipulagi kirkjugarðs og meðferðarstofnunar í Rjúpnadal, ásamt umhverfisskýrslu, að lokinni auglýsingu samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði. |
|
|
|
| 7. 1906192 - Hnoðraholt norður deiliskipulag |
| Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Hnoðraholts norður, ásamt umhverfisskýrslu, að lokinni auglýsingu samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram. Einnig ábendingar og fyrirspurnir sem bárust á milli forkynningar og auglýsingar og svör tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar sem sent var til þeirra íbúa í Þorrasölum í Kópavogi sem höfðu sent inn fyrirspurnir. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði. |
|
|
|
| 8. 1910293 - Vetrarmýri, dsk blandaðrar byggðar. |
| Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar, ásamt umhverfisskýrslu, að lokinni auglýsingu samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði. |
|
|
|
| 9. 2006153 - Sveinskot - skipulagsvinna |
Lögð fram beiðni eigenda lands úr landi Sveinskots milli byggðar í Asparholti og hesthúsasvæðis Sóta sem er um 2 ha að stærð um að fá að deiliskipuleggja svæðið á sinn kostnað sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem íbúðarbyggð. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að bæjarstjórn heimili landeiganda að láta deiliskipuleggja land sitt. Æskilegt væri að deiliskipulag hesthúsasvæðisins yrði unnið samhliða þeirri vinnu og hlyti deiliskipulagsferli samhliða deiliskipulagstillögu íbúðarbyggðarinnar. |
|
|
|
| 10. 2008424 - Vesturtún 38-40 - hækkun þaks -Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa |
| Lögð fram fyrirspurn eigenda parhússins Vesturtún 38-40 um gerð rishæðar. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði. |
|
|
|
| 11. 2005435 - Búsetukjarni Brekkuás 2, breyting á deiliskipulagi Hraunsholts |
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ásahverfis (Hraunsholts vestra) sem gerir ráð fyrir því að leikskólalóð breytist í íbúðarhúslóð sem ætluð er íbúðarkjarna fyrir fatlaða einstaklinga. Svæðið er skilgreint í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem lóð fyrir samfélagsþjónustu. Þó hér sé um íbúðir að ræða lítur skipulagsnefnd svo á að deiliskipulagsbreytingin kalli ekki á aðalskipulagsbreytingu þar sem hér er einnig um samfélagsþjónustu að ræða. Skipulagsstjóri gerir grein fyrir samráðsfundum sem hann hefur átt með starfsmönnum fjölskyldusviðs. Tillagan hefur verið forkynnt í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ábendingar sem borist hafa lagðar fram. Tillögunni vísað til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. |
|
|
|
| 12. 2003086 - Lyngmóar 3 - Umsókn um byggingarleyfi |
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemdum sem borist hafa. Umsóknin gerir ráð fyrir lokun svala íbúða á 1.hæð og palli með skjólveggjum fyrir framan. Pallur og íbúð tengist með tröppum. Tillaga var grenndarkynnt skv. 44. gr. skipulagslaga þar sem að ekkert deiliskipulag er í gildi í Móum. Í athugasemd kemur fram að framkvæmdir hafi verið hafnar þegar grenndarkynning hafi farið fram og er þeim að mestu lokið. Skipulagsnefnd gerir athugasemdir við að framkvæmdir hafi fari fram í óleyfi og þarf byggingarfulltrúi að óska eftir skýringum á því. Ekki eru gerðar athugasemdir við framkvæmdina sem slíka. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við það að byggingarleyfi verði veitt. |
|
|
|
| 13. 2007640 - Frjóakur 9 - Umsókn um byggingarleyfi |
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Akra sem gerir ráð fyrir því að flatarmál neðri hæðar húss (kjallara) sé stærri en 70 % að flatarmáli aðalhæðar. Innréttað hefur verið herbergi í djúpum kjallara með gólfsíðum gluggum og svæði á lóð í sömu hæð. Áður hafði verið veitt leyfi fyrir kjallararýminu sem tæknirými án glugga. Var sú tillaga samþykkt sem frávik frá deiliskipulagi. Gluggar á umræddu rými breyta þeim forsendum. Tillagan metin sem óveruleg breyting deiliskipulags Akra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Frjóakurs 7 og 10 og Byggakurs 18, 20, 22 og 24. |
|
|
|
| 14. 2006070 - Hraungata 12 - Umsókn um byggingarleyfi |
Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi sem nær til lóðarinnar Hraungata 12 og gerir ráð fyrir því að byggingarreitur fyrir neðanjarðarrými verði heimilaður undir bílastæðum á lóðinni. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar. Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar er umsókninni hafnað. |
|
|
|
| 15. 2007239 - Urriðaholtsstræti 42, dsk breyting |
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Gert er ráð fyrir því að íbúðum í fjölbýlishúsinu Urriðaholtstræti 42 fjölgi úr 9 í 10 og fjölgar bílastæðum sem því nemur. Umsögnin er jákvæð. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. |
|
|
|
| 16. 2008275 - Maríugata 23-29 breyting á þaki - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa |
| Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Austurhluta sem nær til raðhúsalengjunnar Maríugata 23-29 sem er af gerð R2. Gert er ráð fyrir lítilsháttar breytingu á þakhalla, hæðarkóta og legu bílastæða. Skipulagsnefnd leggur til að ef samræma á hæðarkóta sé lægri kóti valinn. Með vísan í umsögn er tillögunni vísað til grenndarkynningar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Maríugötu 17-21, 26-28, 30-32,31-37 og 34-40. |
|
|
|
| 17. 2007394 - Maríugata 31-37 breytingar á raðhúsi - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa |
| Lögð fram tillaga að breytingum deiliskipulags Urriðaholts Austurhluta sem nær til raðhúslengjunnar Maríugata 31-37 sem er af gerð R2. Gert er ráð fyrir því að öll húsin verði jafnbreið og því breytast lítillega lóðarmörk á milli húsanna, lóðarstærðir og byggingarreitir. Umsögn deiliskipulagshöfundar lögð fram. Með vísan í umsögn metur skipulagsnefnd breytinguna sem óverulega í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Maríugötu 23-29, 30-32 og 34-40. |
|
|
|
| 18. 2009028 - Hönnun - Útboð - Útivistarstígur frá Vífilsstaðarvatni að Grunnuvatnaskarði |
Lögð fram umsókn bæjarverkfræðings um framkvæmdaleyfi fyrir gerð útivistarstígs frá Vífilsstaðavatni að Grunnuvatnaskarði. Umsókn fylgja tillögur að útfærslu sem Landslag ehf hefur unnið. Tillaga er ekki fyllilega í samræmi við deiliskipulag hvað legu stígs varðar og kallar á óverulega deiliskipulagsbreytingu. Umsókn vísað til umsagnar umhverfisnefndar, Umhverfisstofnunar, Skógræktarfélags Reykjavíkur, Hestamannafélagsins Spretts og Landsnets. |
|
|
|
| 19. 1912270 - Þinglýsing landamerkja Oddfellowa |
| Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlögð gögn. |
|
|
|
| 20. 2008612 - Forvarnarvika í Garðabæ 2020 |
| Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur sagði frá fyrirhugaðri forvarnarviku 7.- 14. október 2020. Yfirskrift vikunnar verður „Að standa með sjálfum sér“. |
|
|
|
|
| Fundargerð |
| 21. 2008032F - afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 10 |
21.1. 2004062 - Blikastígur 11 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir breytingu á bifreiðargeymslu. Í breytingunni felst að útveggur gafls færist fram um 60 cm undir þakskyggni.
Ekkert deiliskipulag er í gildi.
Skipulagsstjóri vísar byggingarleyfisumsókn til grenndarkynningar sbr. 1.mgr.44.gr.Skipulags-og byggingarlaga.
Grenndarkynna skal eigendum Blikastígs 5,7,9,13 og 15.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
|
21.2. 2007379 - Sveinskotsvör 8 þaksvalir - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa sem spyr hvort hugsanlegt sé að heimilaðar verði þaksvalir.
Svar: Samkvæmt deiliskipulagi er gert ráð fyrir einnar hæðar húsum. Ekki er minnst á þaksvalir sérstaklega. Ef að sótt verður um þaksvalir þarf að koma til breyting á deiliskipulagi Vara með tilheyrandi skipulagsferli.
|
21.3. 2005183 - Hákotsvör 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir viðbyggingu við húsið Hákotsvör 8 að lokinni grenndarkynningu. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 1.mgr.44.gr.gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að byggingarleyfið verði veitt.Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
|
21.4. 2007863 - Miðskógar 1 sólskáli - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreit til vestur fyrir sólskála.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Miðskóga í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Miðskóga 2,3 og 4 og Hleinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
|
21.5. 2007128 - Bakkaflöt 2-Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram afrit af aðaluppdráttum byggingarleyfisumsóknar vegna breytinga á lóðinni Bakkaflöt 2 þar sem eigendur þeirra lóða sem grenndarkynning nær til hafa áritað að þeir geri ekki athugsemd við deiliskipulagsbreytinguna. Með vísan í 3.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 er tímabil grenndarkynningar þar með lokið.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
|
21.6. 2007402 - Eskiás - óveruleg dsk br. djúpgámar
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem ná til lóða við Eskiás.
Tillagan gerir ráð fyrir því að fylgilóðir fyrir djúpgáma reiknist til aðallóða og verði hluti af þeim þó þær séu stakstæðar.Ástæða breytingarinnar að Þjóðskrá Íslands mælir með því að fyrirkomulag sé með þeim hætti.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsstjóri fellur frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annara en lóðarhafa og bæjarfélagsins sbr. 2.ml.3.mgr.44.gr.Skipulagslaga.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
|
21.7. 2008230 - Dalsbyggð 21 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu vestan við neðri hæð húss sem er 61.4 m2 að grunnfleti. Ofan á viðbyggingu yrði verönd eða pallur í tengslum við efri hæð hússins.
Viðbygging nær um 1,5 m út fyrir byggingarreit samkvæmt mæliblaði og fjarlæg húss frá lóðarmörkum yrði 3,5 m í stað 5 m eins og byggingarreitur gerir ráð fyrir.
Ekkert deiliskipulag tels í gildi á svæðinu.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr 123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Hlíðarbyuggðar 40,42 og 44,Dalsbyggðar 17,19 og 23 og Hæðarbyggðar 10 og 12. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
|
21.8. 2007070 - Seinakur 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishús að Seinakri 8. Samkvæmt tillögu er meira en helmingur af útbyggingarreit til vesturs byggður auk þess sem allur ytri byggingarreitur er undir þaki.Þakskyggni nær einnig út yfir bílastæði, utan byggingarreits.
Sækja þarf um deiliskipulagsbreytingu og leggja fyrir skipulagsnefnd.
|
21.9. 2008141 - Miðhraun 14 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Í deiliskipulagi er ekki kveðið á um það sérstaklega hvort svalir eða skyggni geti náð út fyrir byggingarreit. Allur gangur er á því í deiliskipulagsáætlunum hvort ákvæði séu þess efnis eður ei. Í tilfelli Molduhrauns eru byggingarreitir stórir og langt á milli þeirra. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við það að svalir nái út fyrir byggingarreit eins og skissa sýnir.
|
21.10. 2008275 - Maríugata 23-29 breyting á þaki - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Fyrirspurn er vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
|
|
|
|