Fundargerðir

Til baka Prenta
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar - 35

Haldinn í Sjálandsskóla,
26.11.2025 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Sigríður Hulda Jónsdóttir formaður,
Jóhann Steinar Ingimundarson aðalmaður,
Bryndís Björk Ásgeirsdóttir aðalmaður,
Hannes Ingi Geirsson aðalmaður,
Hjördís Guðný Guðmundsdóttir aðalmaður,
Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir áheyrnarfulltrúi,
Edda Björg Sigurðardóttir grunn- og tónlistarskólafulltrúi, Linda Udengård sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Anna María Skúladóttir fulltrúi skólastjóra, Ragnheiður Stephensen fulltrúi kennara.
Fundargerð ritaði: Edda Björg Sigurðardóttir, grunn- og tónlistarskólafulltrúi Garðabæjar


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2510244 - Menningarviðburðir í grunn- og leikskólum 2025-2026
Ólöf Breiðfjörð menningarfulltrúi Garðabæjar, sagði frá menningarviðburðum sem nemendum í skólum bæjarins verður boðið upp á, skólaárið 2025-2026. Skólanefnd lýsir ánægju sinni með metnaðarfulla dagskrá.
2. 2505520 - Gervigreindarstefna Garðabæjar
Bjarndís Fjóla Jónsdóttir, verkefnisstjóri kennslu- og upplýsingatækni kynnti gervigreindarstefnu Garðabæjar.
3. 2405510 - Viðurkenningar í skólastarfi
Sigríður Hulda Jónsdóttir formaður skólanefndar fór yfir dagskrá Menntadags Garðabæjar og kynnti þau verkefni sem fengu viðurkenningu. Umræður voru um fyrirkomulag Menntadagsins, áherslur og þróun dagskrár.
4. 2510245 - Þróunarsjóður grunnskóla 2026
Umræður voru um áhersluþætti vegna úthlutunar úr Þróunarsjóði grunnskóla 2026. Formanni skólanefndar og fræðslu- og menningarsviði er falið að útfæra áherslur og auglýsa.
5. 2511443 - Erindi til skólanefndar frá Sjálandsskóla
Skólanefnd samþykkti beiðni Sjálandsskóla um færslu á skólaslitadegi frá 10. júní til eftirmiðdags 9. júní, vegna námsferðar starfsfólks skólans. Skólaslit fara fram eftir skólalok þann 9. júní. Skólastjóra Sjálandsskóla er falið að upplýsa forráðafólk um breytinguna.
6. 2511429 - Kynning og samtal við skólastjórnendur Sjálandsskóla
Skólanefnd þakkar skólastjórnendum Sjálandsskóla fyrir áhugaverða kynningu og lýsir ánægju sinni með að kynnast skólanum og skólastarfinu með þessum hætti.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til baka Prenta

Fylgigögn eru birt með fundargerðum:

  • bæjarráðs, frá og með 12. fundi 2015
  • skólanefndar grunnskóla frá og með 14. fundi 2015
  • mannréttinda- og forvarnanefndar frá og með 16. fundi 2015
  • umhverfisnefndar frá og með 18. fundi 2015
  • leikskólanefndar frá og með 15. fundi 2015
  • menningar- og safnanefndar frá og með 12. fundi 2015
  • íþrótta- og tómstundaráðs frá og með 14. fundi 2015

Reglur um birtingu gagna með fundargerðum (sjá reglur undir stjórnsýslu).