|
| Almenn erindi |
| 1. 1903374 - Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes |
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi að lokinni forkynningu ásamt þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa. Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum. |
|
|
|
| 2. 1803108 - Norðurnes Álftaness, deiliskipulag |
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi að lokinni forkynningu ásamt þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa. Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum. |
|
|
|
| 3. 2203422 - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi |
Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis. Viðfangsefni breytingartillögunnar er heildarendurskoðun á kafla 4.2 aðalskipulagsgreinargerðarinnar um stígakerfi. Svæðið sem tillagan nær til er allt land innan sveitarfélagsmarka Garðabæjar og miðar að því að skilgreina heildrænt og skilvirkt stígakerfi með öryggi og aðlaðandi umhverfi að leiðarljósi. Skilmálar tillögunnar eru ætlaðir til leiðbeiningar fyrir deiliskipulagsgerð, verkhönnun og uppbyggingu stíga í Garðabæ til framtíðar. Texti og myndir í kafla 4.2 um stígakerfi í greinargerð Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 munu verða felldir úr gildi og í staðinn komi endurskoðaður kafli um stígakerfið sem fram er settur í greinargerð framlagðrar tillögu sem kafli 2 "Breytingartillaga". Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þráinn Hauksson frá Landslagi ehf gerði grein fyrir tillögunni. |
|
|
|
| 4. 1710244 - Gálgahraun, deiliskipulag friðlands. |
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Gálgahrauns og Garðahrauns neðra sem unnin hefur verið af Dagnýju Bjarnadóttur landslagsarkitekt. Innan deiliskipulagssvæðisins eru tvö friðlýst svæði, annars vegar Gálgahraun sem er friðlýst sem friðland í samræmi við 1. tl. 53. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999 og hins vegar Garðahraun neðra sem er hluti af friðlýstum fólkvangi, í samræmi við 55. gr. laga um náttúruvernd nr. 44/1999. Friðlýstu svæðin tvö mynda órofa heild frá strönd að núverandi samgöngumannvirkjum og er svæðið þekkt fyrir merkar hraunmyndanir sem ná niður að sjó. Svæðið er einnig þekkt fyrir forna slóða sem liggja í gegnum hraunið og Gálgakletta. Svæðið er á jaðri byggðar og er vinsælt göngusvæði einstaklinga og gönguhópa. Megin markmið deiliskipulagsins er verndun mikilvægra náttúruminja, jarðmyndana, gróðurfars og fuglalífs. Einnig er lögð áhersla á fræðsluþátt friðlýsingarinnar og á það ekki síst við um sögulegar minjar. Undirliggjandi markmið skipulagsins snúa að lýðheilsumarkmiðum Garðabæjar, þar sem lögð er áhersla á að bæta vistvænar samgönguleiðir og skapa gott aðgengi að mikilvægum útivistarsvæðum. Í skipulaginu er þannig reynt að stuðla að hollri útivist en á sama tíma vernda einstakar hraunmyndanir og náttúra með stýrðu aðgengi. Í friðlýsingu fólkvangsins segir m.a. „markmið friðlýsingarinnar er að efla lífsgæði í sveitarfélaginu með því að tryggja möguleika til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu í náttúrulegu umhverfi“, deiliskipulagið er unnið með það í huga ásamt ríkri áherslu á náttúruvernd. Lýsing verkefnisins var samþykkt í byrjun árs 2019 og forkynning fór fram síðar á því ári. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hún skal kynnt samhliða tillögu að breytingu Aðalskiplags Garðabæjar sem nær til stígakerfis.
|
|
|
|
| 5. 2601486 - Birkiholt 14 - Stækkun byggingarreits - Fyrirspurn til umhverfissviðs |
| Lögð fram fyrirspurn um hugmynd að viðbyggingu við endaraðhúsið Birkiholt 14. Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði. |
|
|
|
| 6. 2512147 - Vífilsstaðir, deiliskipulag, 1.áfangi |
Sigbjörn Kjartansson og Bæring Bjarnar Jónsson arkitektar hjá Glámu-Kím fóru yfir helstu forsendur vinnu við mótun tillögu að 1. áfanga deiliskipulags Vífilsstaða. Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum. |
|
|
|
| 7. 2506190 - Kjarrprýði 1 - Fyrirspurn til umhverfissviðs |
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu einbýlishúss sem gerir ráð fyrir því að gólfkóti hússins verði lækkaður um 30 cm þannig að hæð húss sé í sömu hæð yfir sjávarmáli og sú hæð sem deiliskipulag kveður á um. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar um fyrirspurn. Svar: Skipulagsnefnd telur að hæð útveggja yfir landi hafi áhrif á upplifun hússins og hún verði samkvæmt þessu 6,8 metrar en deiliskipulag kveði á um 6,5 metra. Hæð yfir sjávarmáli breytir því litlu um þá upplifun. Fram kemur í umsögn deiliskipulagshöfundar að "ríkjandi" hæð lóðarinnar sé 21 mys og er gólfkótinn 21,1 því eðlileg hæð og ekki ástæða til að lækka hús í landi til þess að ná fram því markmiði deiliskipulagsins að laga hæðarsetningu lóðar að náttúrulegu landslagi. Skipulagsnefnd bendir auk þess á að samkvæmt uppdrætti eru tvær íbúðir í húsinu en í grein 2.2.2 í skipulagsgreinargerð segir að aðeins ein íbúð sé heimiluð. |
|
|
|
| 8. 2601474 - Kjarrprýði 6 - Fyrirspurn til umhverfissviðs |
| Lögð fram skissa sem fylgir fyrirspurn um útfærslu byggingar á lóðinni Kjarrprýði 6. Skipulagsnefnd telur að hugmyndin geti samrýmst ákvæðum deiliskipulags Garðahrauns. |
|
|
|
| 9. 2601475 - Kjarrprýði 8 - Fyrirspurn til umhverfissviðs |
| Lögð fram skissa sem fylgir fyrirspurn um útfærslu byggingar á lóðinni Kjarrprýði 8. Skipulagsnefnd telur að hugmyndin geti samrýmst ákvæðum deiliskipulags Garðahrauns. |
|
|
|
| 10. 2512239 - Skerpluholt 2 - Fyrirspurn til umhverfissviðs |
Lögð fram tillaga að útfærslu einbýlishúss að Skerpluholti 2 sem fylgir fyrirspurn arkitekts fyrir hönd lóðarhafa. Tillagan gerir ráð fyrir kjallara undir suðurhluta hússins. Svar: Skipulagsnefnd telur að útfærslan komi til greina þar sem að sýnt hefur verið fram á að hæðarlega lóðarinnar og aðliggjandi lands gefi tilefni til þess að útfæra bygginguna með þessum hætti. Útfærslan kallar á umsókn um breytingu deiliskipulags.
|
|
|
|
| 11. 2601487 - Suðurhraun 10 - Deiliskipulagsbreyting |
| Máli frestað til næsta fundar en ráðgjafi boðaði forföll vegna veikinda. |
|
|
|
| 12. 2509268 - Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025 |
| Lögð fram íbúakönnun/þjónustukönnun Gallups um þjónustu sveitarfélaga á Íslandi. |
|
|
|
| 13. 2510073 - Breyting á greinargerð aðalskipulag Hafnarfjarðar vegna Flensborgarhafnar, nr. 1257/2025: Lýsing |
| Lögð fram verkefnislýsing á tillögu að breytingu Aðalskipulags Hafnarfjarðar. Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við lýsinguna. |
|
|
|
| 14. 2601514 - Breyting á þingsályktun nr.24/152 um áætlun og vernd og orkunýtingu landsvæða, 307. mál. |
| Lögð fram tillaga frá nefnda-og greiningarsviði Alþingis að breytingu á þingsályktun nr.24/152 um áætlun og vernd orkunýtinga landssvæða sem er til umsagnar í umsagnagátt Alþingis. |
|
|
|
|
| Fundargerð |
| 15. 2601051F - Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 2 |
15.1. 2601206 - Hraunhólar 6A - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi við Hraunhóla 6a. Hluti byggingar (bílageymsla) nær lítillega út fyrir byggingarreit til vesturs. Skipulagsstjóri metur umsóknina sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum við Hraunhóla 4, 4a og 6.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
|
|
|
|