Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarstjórn Garðabæjar
13. (965). fundur
02.10.2025 kl. 17:00 kom bæjarstjórn Garðabæjar saman til fundar í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi.
Fundinn sátu: Almar Guðmundsson bæjarfulltrúi. Björg Fenger bæjarfulltrúi. Sigríður Hulda Jónsdóttir bæjarfulltrúi. Margrét Bjarnadóttir forseti bæjarstjórnar. Hrannar Bragi Eyjólfsson bæjarfulltrúi. Stella Stefánsdóttir varabæjarfulltrúi. Guðfinnur Sigurvinsson bæjarfulltrúi. Þorbjörg Þorvaldsdóttir bæjarfulltrúi. Ingvar Arnarson bæjarfulltrúi. Brynja Dan Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi. Guðlaugur Kristmundsson bæjarfulltrúi.

Fundargerð ritaði: Lúðvík Örn Steinarsson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins. Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði. Fundargerð bæjarstjórnar frá 18. september 2025 er lögð fram.
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið: 
1. 2509027F - Fundargerð bæjarráðs frá 23/9 ´25.
Björg Fenger ræddi 4.tl. deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Golfvöllur og útivistarskógur, 7.tl. Hnoðraholt-háholt, deiliskipulag og 16.tl. Lambamýri, fjölnota aðstaða fyrir eldri borgara - skoðunarferð.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi 16.tl. Lambamýri, fjölnota aðstaða fyrir eldri borgara - skoðunarferð.

Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 10.tl. Tónlistarskóla - Kirkjulundur, deiliskipulagsbreytingu.

Almar Guðmundsson ræddi 16.tl. Lambamýri, fjölnota aðstaða fyrir eldri borgara - skoðunarferð.

Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 14.tl. reglur um ferðastyrki ÍTG.

Fundargerðin sem er 16.tl. er samþykkt samhljóða.
 
2409044 - Mávanes 13 - Umsókn um byggingarleyfi
 
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 18. september 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Arnarness sem nær til lóðarinnar Mávanes 13. Tillagan hefur það markmið að skapa grundvöll fyrir byggingarleyfi fyrir bátaskýli sem hefur verið reist og nær út fyrir lóðarmörk. Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðarmörk að vestanverðu breytast þannig að byggingarreitur bátaskýlis verði innan lóðar. Stærð lóðar er óbreytt. Byggingareitur íbúðarhúss skerðist sem nemur byggingarreit bátaskýlis. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vekja skal athygli á auglýsingunni með því að senda dreifibréf í öll hús við Mávanes.
 
 
2202488 - Deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Golfvöllur og útivistarskógur.
 
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 18. september 2025 varðandi tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts ásamt umsögnum og athugasemdum. Lögð var fram greinargerð deiliskipulagsráðgjafa með tillögu að svörum við athugasemdum. Jafnframt var lögð fram skýrsla Eflu um áhrif tillögunnar á umferð aðliggjandi svæða. Skipulagsnefnd ítrekar að í svörum við athugasemdum er tekið fram að tenging Vorbrautar við Öldusali muni aðeins koma þegar þörf er á. Eftirfarandi atriðum er breytt í greinargerð eftir auglýsingu tillögunnar m.t.t. umsagna og ábendinga: Kafli 3.2. Bætt við að leita skuli samráðs við Náttúruverndarstofnun vegna náttúrugarðs. Kafli 3.4. Bætt við skilmála að samráð skal haft við viðeigandi veituaðila vegna veitumála. Kafli 3.4.1 Bætt við skilmálum um framkvæmdir innan helgunarsvæðis háspennulínu. Eftirfarandi atriðum er breytt á uppdráttum deiliskipulagsins eftir auglýsingu tillögunnar m.t.t. umsagna og ábendinga: Hnoðraholtslína: helgunarsvæði loftlínu og jarðstrengs sett inn á deiliskipulagsuppdrátt og skýringaruppdrætti. Golfbrautir á skýringaruppdrætti sýndar með tilliti til Hnoðraholtslínu en frekari hönnun í samráði við Landsnet, sjá greinargerð. Flóttamannavegur: 60 m helgunarsvæði stofnvegar skv. flokkun Vegagerðarinnar sett inn á uppdrætti. Friðlýsingarmörk látin ná að græna stígnum við Vífilsstaðavatn. Útivistarskógur í Smalaholti: Bílastæðum norðan Elliðavatnsvegar fjölgað um 10 stæði Lega útvistarstíga lagfærð á stuttum köflum til að fækka þverunum þeirra yfir reiðstíg í Smalaholti. Deiliskipulagið kallar á breytingar á aðliggjandi deiliskipulagsáætlunum; Hnoðraholt norður, Vetrarmýri-Miðsvæði og Heiðmörk og Sandahlíð, sem liggja fyrir afgreiðslu á fundi þessum og hafa verið samþykktar í skipulagsnefnd sem óverulegar breytingar og munu hljóta staðfestingu um leið og deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Ennfremur hefur óveruleg breyting rammahluta aðalskipulags Garðarbæjar 2016-2030 verið samþykkt þar sem mörk milli landnotkunarflekanna 4.10 Íþ og opins svæðis í Smalaholti breytast til aðlögunar að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts. Skipulagsnefnd samþykkti deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts með framangreindum breytingum í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
 
 
2504060 - Smalaholt, óveruleg breyting Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030
 
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 18. september 2025 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar, rammahluta Vífilsstaðalands sem gerir ráð fyrir breytingu á afmörkun landnotkunarreitsins 4.10 Íþ til samræmis við tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna sem óverulega breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Senda skal breytinguna til afgreiðslu hjá Skipulagsstofnun.
 
 
2509304 - Heiðmörk og Sandahlíð, óveruleg dsk breyting vegna skipulagsmarka.
 
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 18. september 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Heiðmerkur og Sandahlíðar sem gerir ráð fyrir því að afmörkun deiliskipulagssvæðis breytist til aðlögunar að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts. Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Heiðmerkur og Sandahlíðar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning er felld niður þar sem að tillagan er í samræmi við tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts. Tillagan skal hljóta staðfestingu um leið og tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts.
 
 
2409103 - Hnoðraholt-háholt, deiliskipulag
 
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 18. september 2025 varðandi tillögu að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts. Tillagan gerir alls ráð fyrir 77 íbúðareiningum, þar af 26 einbýlishúsum, 41 raðhúsaeiningu, 2 parhúsaeiningum og 8 fjölbýliseiningum, ýmist á einni eða tveimur hæðum. Auk þess er gert ráð fyrir lóð fyrir leikskóla og búsetukjarna. Megináhersla deiliskipulagsins er að skapa lágreista og uppbrotna íbúðabyggð sem fellur að landinu á háholti og niður hlíðarnar í suðurhluta Hnoðraholts. Gert er ráð fyrir blöndu einbýlishúsa og raðhúsa, einnar og tveggja hæða, sem raðast í sveigðar byggðalínur í takt við hæðarlínur og landslag. Græn svæði og stígar tengja byggðina innbyrðis og við nærliggjandi hverfi. Áhersla er lögð á að byggðin styðji við fjölbreytni í búsetu og aðgengi að náttúru og útivist. Mikilvægt er að tryggja góða tengingu við Vetrarbraut, stíga yfir háholtið og framtíðaruppbyggingu aðliggjandi svæða í Vífilsstaðalandi. Deiliskipulagið tekur mið af sjálfbærum lausnum í innviðum, þar með talið blágæna meðferð ofanvatns, vistvænt efnisval og aðgengi fyrir gangandi og hjólandi. Skipulagsnefnd samþykkti að vísa tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Boða skal til kynningarfundar á meðan á auglýsingu tillögunnar stendur.
 
 
2410080 - Hnoðraholt - Háholt - Aðalskipulagsbreyting
 
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 18. september 2025 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til háholts Hnoðraholts ásamt erindi Skipulagsstofnunar vegna tillögunnar þar sem að fram kemur að stofnunin geri ekki athugasemd við auglýsingu breytingartillögunnar. Auglýsa skal tillöguna samhliða tillögu að deiliskipulagi að háholti Hnoðraholts.
 
 
2509095 - Hnoðraholt N - Dsk.br. leikskóla- og þjónustulóð
 
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 18. september 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts Norður sem gerir ráð fyrir því að lóðir fyrir leikskóla og búsetukjarna eru felldar út enda er gert ráð fyrir sambærilegum lóðum í tillögu að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts og tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem nær til háholtsins. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal auglýsa hana samhliða tillögu að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts og tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til háholts Hnoðraholts.
 
 
2509269 - Tónlistarskóli - Kirkjulundur - dsk br.
 
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 18. september 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar sem nær til lóðar tónlistarskóla við Kirkjulund. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vekja skal athygli lóðarhafa við Kirkjulund og Hofslund á auglýsingunni með dreifibréfi.
 
 
2505330 - Bréf SSH um farsældarráð höfuðborgarsvæðisins, samning, skipurit og starfsreglur, dags. 15.09.2025.
 
Bæjarstjórn samþykkir samning sveitarfélaganna Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar, Reykjavíkur og Seltjarnarnesbæjar um svæðisbundið farsældarráð, ásamt starfsreglum ráðsins og felur Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að undirrita samninginn fyrir hönd Garðabæjar.
 
 
2508208 - Reglur um ferðastyrki ÍTG
 
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breytingum á reglum Garðabæjar um ferðastyrki til íþróttafólks Garðabæjar vegna þátttöku í landsliðsverkefnum erlendis.
 
2. 2509033F - Fundargerð bæjarráðs frá 30/9 ´25.
Björg Fenger ræddi 1.tl. opnun tilboða í byggingarrétt lóða í vetrarmýri, 2.tl. hjúkrunarheimili og þjónustu við fólk sem bíður eftir hjúkrunarrými og lagði til að bókun bæjarráðs yrði áréttuð af bæjarstjórn og tekin upp í fundargerð:
"Bæjarráð kallar eftir ákvörðunum stjórnvalda um uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis í Garðabæ. Loforð sveitarfélagsins um lóð liggur fyrir og allar skipulagsforsendur sömuleiðis. Aðeins 60 hjúkrunarrými eru í dag í okkar vaxandi sveitarfélagi sem telur rúmlega 21 þúsund íbúa.
Þá hvetur bæjarráð yfirvöld til að standa við löngu gefið loforð um 10 ný dagdvalarrými á hjúkrunarheimilinu Ísafold. Tvö ár eru síðan heilbrigðisráðuneyti heimilaði fleiri rými, sem ekki hefur verið efnt.
Garðabær lýsir sig reiðubúinn í samstarf við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um mikilvæga samþættingu á heimahjúkrun og heimaþjónustu fyrir eldri íbúa, sem yrði til hagsbóta fyrir notendur þjónustunnar."
Þá ræddi Björg 4.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Kópavogsbær - aðalskipulagsbreyting og deiliskipulagsbreyting Vatnsendahlíð, Vatnsvík og Kjóavellir, umsögn.

Fundargerðin sem er 8.tl. er samþykkt samhljóða.
3. 2509024F - Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 17/9 ´25.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. afreksstyrki 2025 - seinni úthlutun, 2.tl. umsókn um styrk til handknattleiksdeildar Stjörnunnar vegna forkeppni Evrópudeildar, 3.tl. reglur um ferðastyrki ÍTG og lagði til að bókun ÍTG yrði áréttuð af bæjarstjórn og tekin upp í fundargerð: "ÍTG hvetur til þess að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu geri úttekt á reglum sem gilda um ferðastyrki á svæðinu og skoði fýslileika þess að þær verða samræmdar eins og kostur er."
Þá ræddi Hrannar Bragi 4.tl. forvarnarviku Garðabæjar 2025, 5.tl. íþrótta- og tómstundaþing Garðabæjar, 6.tl. framtíðar uppbyggingu íþróttaaðstöðu, 7.tl. GKG kynningu fyrir ÍTG og 8.-28.tl. umsóknir um styrki úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 6.tl. framtíðar uppbyggingu íþróttaaðstöðu.

Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 4.tl. forvarnarviku Garðabæjar 2025.

Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 4.tl. forvarnarviku Garðabæjar 2025.

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi 4.tl. forvarnarviku Garðabæjar 2025 og 6.tl. framtíðar uppbyggingu íþróttaaðstöðu.

Fundargerðin er lögð fram.
4. 2509023F - Fundargerð leikskólanefndar frá 17/9 ´25.
Margrét Bjarnadóttir ræddi 1.tl. könnun Gallup á breytingum á starfsumhverfi leikskóla og 2.tl. leikskólar - staða innritunar.

Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 1.tl. könnun Gallup á breytingum á starfsumhverfi leikskóla og 2.tl. leikskólar - staða innritunar.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi 1.tl. könnun Gallup á breytingum á starfsumhverfi leikskóla.

Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. könnun Gallup á breytingum á starfsumhverfi leikskóla og 2.tl. leikskólar - staða innritunar.

Fundargerðin er lögð fram.
5. 2509019F - Fundargerð skipulagsnefndar frá 18/9 ´25.
Fundargerðin er lögð fram.
6. 2509003F - Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 18/9 ´25.
Stella Stefánsdóttir ræddi 1.tl. tillögu um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk.

Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. tillögu um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk.

Fundargerðin er lögð fram.
7. 2509004F - Fundargerð velferðarráðs frá 19/9 ´25.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl. aðgerðaráætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026, 2.tl. endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks, 3.tl. búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti og 4.tl. frístundaþjónusta.

Fundargerðin er lögð fram.
8. 2501538 - Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 29/9 ´25.
Fundargerðin er lögð fram.
9. 2501149 - Fundargerðir stjórnar SSH frá 15/9 og 22/9 ´25.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
10. 2501492 - Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 12/9 ´25.
Fundargerðin er lögð fram.
11. 2502221 - Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 12/9 ´25.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. fjárhagsáætlun 2026, 2.tl. hleðsluútboð, 5.tl. fargjaldatekjur, 6.tl. aðgengi fyrir öll og 7.tl. breytingarstjórnun og staða stofnunar nýs félags.

Fundargerðin er lögð fram.
12. 2509139 - Fundargerð eigendafundar Sorpu bs. frá 22/9 ´25.
Fundargerðin er lögð fram.
13. 2502251 - Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 19/9 ´25.
Fundargerðin er lögð fram.
14. 2502040 - Fundargerðir samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 12/6 og 17/9 ´25.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi fundargerð 17. september 2025, 1.tl. drög að fjárhagsátælun samstarfsnefndar skíðasvæðanna fyrir árið 2026.

Almar Guðmundsson ræddi fundargerð 17. september 2025, 1.tl. drög að fjárhagsáætlun samstarfsnefndar skíðasvæðanna fyrir árið 2026 og 2.tl. umræðu um Skálafell.

Fundargerðirnar eru lagðar fram.
15. 2509462 - Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins 2026.
Lögð fram til afgreiðslu gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sem samþykkt var á stjórnarfundi 19. september 2025. Bæjarstjórn samþykkir samþykktina fyrir sitt leyti.
16. 2506043 - Kosning fulltrúa í fastanefnd.
Gerð tillaga um að Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir (B) verði kjörin varamaður í umhverfisnefnd í stað Einars Arnar Ævarssonar (B).

Tillagan er samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00. 
Til baka Prenta

Fylgigögn eru birt með fundargerðum:

  • bæjarráðs, frá og með 12. fundi 2015
  • skólanefndar grunnskóla frá og með 14. fundi 2015
  • mannréttinda- og forvarnanefndar frá og með 16. fundi 2015
  • umhverfisnefndar frá og með 18. fundi 2015
  • leikskólanefndar frá og með 15. fundi 2015
  • menningar- og safnanefndar frá og með 12. fundi 2015
  • íþrótta- og tómstundaráðs frá og með 14. fundi 2015

Reglur um birtingu gagna með fundargerðum (sjá reglur undir stjórnsýslu).