Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð Garðabæjar - 8. (2203)

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi,
03.03.2026 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Sigríður Hulda Jónsdóttir varaformaður,
Gunnar Valur Gíslason varamaður,
Hrannar Bragi Eyjólfsson aðalmaður,
Þorbjörg Þorvaldsdóttir aðalmaður,
Brynja Dan Gunnarsdóttir aðalmaður,
Guðlaugur Kristmundsson áheyrnarfulltrúi,
Almar Guðmundsson bæjarstjóri, Lúðvík Örn Steinarsson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Svanhildur Þengilsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Linda Udengård sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs, Ágúst Þór Guðmundsson sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs, Guðný Hrönn Antonsdóttir samskipta- og kynningarfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Lúðvík Örn Steinarsson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2509298 - Sumarnámskeið barna 2026.
Guðbjörg Linda Udengård, sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs kynnti minnisblað um stöðu sumarnámskeiða í Garðabæ sumarið 2025 og áform um breytingar fyrir sumarið 2026.

Unnið er með það að markmiði að fjölbreytt sumarnámskeið ýmissa félaga í bænum spanni allar vikur sumarsins og að áfram fjölgi heilsdags námskeiðum. Veittur verður viðbótarstuðningur til nokkurra félaga til að gera þeim kleift að halda úti námskeiðum í ágúst rétt fyrir skólabyrjun. Að auki mun starfsemi frístundaheimila hefjast viku fyrir skólabyrjun fyrir börn í 2.bekk, til viðbótar við börn í 1.bekk.
2. 2601240 - Hólmatún 59A - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Garðabæ, kt 570169-6109, leyfi fyrir byggingu dælu- og hreinsistöðvar að Hólmatúni 59A.
3. 2512238 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Votakur 3, deiliskipulagsbreyting.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 26. febrúar 2026 varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akra sem nær til lóðarinnar Votakur 3 að lokinni grenndarkynningu. Gert er ráð fyrir stækkun ytri byggingarreits til vesturs þar sem heimilt yrði að stækka kjallara og útbúa svalir ofan á viðbyggingu.
Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting á deiliskipulagi Akra.
4. 2507363 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Krókamýri 14, fyrirspurn til umhverfissviðs.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 26. febrúar 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi að Krókamýri 14 sem gerir ráð fyrir viðbyggingu við húsið til austurs að lokinni grenndarkynningu. Húsið er parhús og liggur fyrir yfirlýsing meðeigenda að þau geri ekki athugasemd við útfærsluna. Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Mýrum. Skipulagsnefnd vísaði umsókn um byggingarleyfi til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn.
5. 2602438 - Beiðni Hestamannafélagsins Sóta um niðurfellingu fasteignagjalda 2026, dags. 19.02.26.
Bæjarráð samþykkir að veita Hestamannafélaginu Sóta styrk að fjárhæð kr. 1.006.994 til greiðslu fasteignagjalda árið 2026.
6. 2602458 - Áskorun Siglingasambands Íslands til sveitarstjórna varðandi verndun og aðgengi að strandlengju Íslands, dags. 25.02.26.
Lagt fram.
7. 2601404 - Tónlistarskóli stækkun - opnun tilboða
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Stækkun Tónlistarskóla":

1. Aðalvík ehf., kr. 468.038.706, 89,0%.
2. Alefli ehf., kr. 523.954.439, 99,6%.
3. All Verk ehf., kr 488.353.564, 92,9%.
4. Atlas verktakar ehf., kr. 544.077.873, 103,5%.
5. E. Sigurðsson ehf., 460.140.756, 87,5%.
6. Eykt hf., kr. 561.470.947, 106,8%.
7. Húsameistari ehf., 608.873.560, 115,8%.
8. Íslenskir aðalverktakar hf., 622.837.123, 118,5%.
9. K16 ehf., kr. 529.803.345, 100,8%.
10. Landris ehf., kr. 541.676.392, 103,0%.
11. PK Verk ehf., kr. 593.844.975, 112,9%.
12. Sjammi ehf., kr. 499.997.404, 95,1%.
13. Stéttafélagið ehf., kr. 556.017.584, 105,7%.
14. Tindhagur ehf., kr. 652.983.592, 124,2%.

Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 525.806.879, 100,00%, Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda E. Sigurðssonar ehf., að fjárhæð kr. 460.140.756, (87,5% af kostnaðaráætlun).

Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Gunnar Valur Gíslason vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til baka Prenta

Fylgigögn eru birt með fundargerðum:

  • bæjarráðs, frá og með 12. fundi 2015
  • skólanefndar grunnskóla frá og með 14. fundi 2015
  • mannréttinda- og forvarnanefndar frá og með 16. fundi 2015
  • umhverfisnefndar frá og með 18. fundi 2015
  • leikskólanefndar frá og með 15. fundi 2015
  • menningar- og safnanefndar frá og með 12. fundi 2015
  • íþrótta- og tómstundaráðs frá og með 14. fundi 2015

Reglur um birtingu gagna með fundargerðum (sjá reglur undir stjórnsýslu).