|
| Almenn erindi |
| 1. 2104420 - Vífilsstaðahraun, deiliskipulag Fólkvangs |
Þráinn Hauksson og Halldóra Narfadóttir hjá Landslagi ehf kynntu drög að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns. Vísað til frekari mótunar hjá ráðgjöfum og tækni-og umhverfissviði. |
|
|
|
| 2. 2105498 - Þorraholt, dsk breyting, Hnoðraholt norður |
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til íbúarbyggðar í Þorraholti. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreitum sem hafa það að markmiði að bæta búsetugæði íbúðanna. Byggingarmagn breytist ekki en fjöldi íbúða getur orðið á bilinu 180-220 í stað 200 áður. Fjarlægð byggingareita næst núverandi byggð í Hnoðraholti breytist ekki. Tillagan hefur verið kynnt fulltrúum íbúa í Hnoðraholti. Fallið er frá verkefnislýsingu og forkynningu í samræmi við 40.gr.skipulagslaga nr.123/2010 þar sem allar forsendur eru til staðar í aðalskipulagi sem er sett fram sem rammahluti. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 41. gr. sömu laga. |
|
|
|
| 3. 2111064 - Breyting á vaxtamörkum svæðisskipulags í landi Garðabæjar. Aðal- og svæðisskipulagsbreyting. |
| Ssipulagsstjóri fer yfir forsendur tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem kallar á breytingu vaxtamarka í svæðisskipulagi. |
|
|
|
| 4. 2102111 - Víðiholt íbúðabyggð. Deiliskipulag |
Skipulagsstjóri greinir frá ákvörðun tækni- og umhverfissviðs að fresta kynningarfundi sem fara átti fram í dag. Ástæðan er staðan í faraldrinum og samkomutakmarkanir. Tilkynnt hefur verið að fundurinn muni fara fram eftir áramót. Skipulagsnefnd leggur til að fundurinn verði haldinn fimmtudaginn 13. janúar 2022 og athugasemdafrestur verði framlengdur til 27. janúar. |
|
|
|
| 5. 2102110 - Félagssvæði Sóta. Deiliskipulag. |
Skipulagsstjóri greinir frá ákvörðun tækni- og umhverfissviðs að fresta kynningarfundi sem fara átti fram í dag. Ástæðan er staðan í faraldrinum og samkomutakmarkanir. Tilkynnt hefur verið að fundurinn muni fara fram eftir áramót. Skipulagsnefnd leggur til að fundurinn verði haldinn fimmtudaginn 13. janúar 2022 og athugasemdafrestur verði framlengdur til 27. janúar. |
|
|
|
| 6. 2109133 - Blikanes 6 - stækkun byggingarreits. -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs |
Lögð fram tillaga að að óverulegri breytingu deiliskipulags Arnarness sem nær til lóðarinar Blikanes 6 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreit á bakhluta lóðar til norðausturs. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Arnarness. |
|
|
|
| 7. 1912107 - Hraunhólar 8, breyting á deiliskipulagi Hraunholts eystra |
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags lóðarinnar Hraunhólar 8 að lokinni grenndarkynningu. Vegna mistaka voru ný lóðarmörk ekki sýnd eins og lóðarhafi hafði óskað eftir. Gerði umsækjandi því athugsemd við grenndarkynninguna. Þar sem að lagfæring lóðarmarka varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins samþykkir skipulagsnefnd lagfæringu á tillögunni hvað varðar lóðarmörk og lögun byggingarreits. Skiplagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. |
|
|
|
| 8. 2110329 - Iðnbúð 6 - stækkun á byggingareit - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs |
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð. Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Iðnbúðar/Smiðsbúðar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr.sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Iðnbúðar 4 og 8 og Gilsbúðar 3, 5 og 7. |
|
|
|
| 9. 2110369 - Hraunás 3 innrétta bílskúr - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs |
| Fyrirspurn vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði. |
|
|
|
| 10. 2108232 - Blikanes 22 - fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs |
Lögð fram tillaga að að óverulegri breytingu deiliskipulags Arnarness sem nær til lóðarinar Blikanes 22 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreit á suðausturhluta hússins. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Arnarness. |
|
|
|
| 11. 2102544 - Hönnun - Útboð - Aðkomutákn við Hafnarfjörð - Reykjanesbraut |
Lögð fram umsókn tækni- og umhverfissviðs um framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningu aðkomutákns við mörk Garðabæjar og Hafnarfjarðar við Reykjanesbraut að sunnanverðu. Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir uppsetningu aðkomutákns í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um jákvæða umsögn Vegagerðarinnar. |
|
|
|
| 12. 1907083 - Víkurgata 19 - Umsókn um byggingarleyfi |
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur fyrir leyfileg innskot/útskot stækki. Með vísan í fyrri afgreiðslur málsins hafnar skipulagsnefnd tillögunni. |
|
|
|
| 13. 2108621 - Mosagata leiksvæði. Breyting á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluti |
Lögð fram tillaga að breyting deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir að göngustígur frá Mosagötu að göngustíg á milli lóða við Mosagötu og Holtsveg falli út ásamt leiksvæði. Um leið breytast mörk lóðarinnar Mosagata 4 sem stækkar til norðvestur. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. |
|
|
|
| 14. 2110336 - Grímsgata 2-4 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs |
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa og húsbyggjanda um útfærslu 1. hæðar ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað umrædda útfærslu varðar. |
|
|
|
| 15. 1911163 - Lýðræðisstefna Garðabæjar- endurskoðun |
Hulda Haukssdóttir upplýsingafulltrúi Garðabæjar kynnti vinnu við endurkoðun Lýðræðisstefnu Garðabæjar. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillögu að Lýðræðisstefnu Garðabæjar. |
|
|
|
| 16. 1911396 - Loftlagsstefna Garðabæjar |
Guðbjörg Brá Gísladóttir deildarstjóri umhverfis og framkvæmda gerði grein fyrir tillögu að Loftlagsstefnu Garðabæjar. Skipulagsnefnd bendir á að í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er gert ráð fyrir umstalverðri íbúafjölgun í sveitarfélaginu næstu árin sem þarf að taka tillit til í gerð loftslagsstefnu Garðabæjar.
|
|
|
|
| 17. 2108303 - Tillaga um að að gera heildstætt mat á vistvænum samgöngum í Garðabæ. |
| Skipulagsnefnd felur tækni- og umhverfissviði að hefja vinnu við endurskoðun á kafla 4, samgöngur og þjónustukerfi, í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 þar sem áhersla verður á vistvænar samgöngur í bæjarfélaginu og í kjölfarið unnin aðgerðaráætlun sem dregur úr neikvæðum umhverfisáhrifum frá umferð og eflir um leið sjálfbærni og heilsueflingu samfélagsins. |
|
|
|
| 18. 2111211 - Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025. Breyting. Skipulagslýsing. Hellnahraun |
| Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við skipulagslýsinguna. |
|
|
|
| 19. 2111173 - Smárahvammsvegur, Deiliskipulag |
| Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði. |
|
|
|
| 20. 1804300 - Álftanes sjóvarnir |
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gerð sjóvarna í fólkvanginum að Hliði og við Bessastaðaskans. Afla þarf umsagnar Forsetaembættisins, Umhverfisstofnunar og Minjastofnunar. |
|
|
|
|
| Fundargerð |
| 21. 2111023F - afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 12 |
21.1. 2110078 - Muruholt 2 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að girðingu á mörkum lóðarinnar Muruholt 2 að Lyngholti.
Með vísan í samþykkt um veggi og girðingar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við vegghæð í 1,5 á þessari hlið lóðar á meðan að veggur verið brotinn upp á 2 til 3 stöðum og plöntur gróðursettar í innskotið.
Samkomulag eigenda aðliggjandi lóða við Klukkuholt þarf að liggja fyrir vegna veggja á og við þau lóðarmörk.
|
21.2. 2110175 - Lyngholt 1 og 3 - óveruleg deiliskipulagsbreyting
Lögð fram umsókn lóðarhafa Lyngholts 1 og 3 um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir tilfærslu á lóðarmörkum um 90 cm til norðurs þannig að lóð nr. 1 stækkar um 27 m2 en lóð nr.3 minnkar sem því nemur.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar og norðanverðs Sviðholts í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
|
21.3. 2109366 - Borgarás 10 - Bílastæði - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir. Tilllagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
|
21.4. 2107293 - Borgarás 12 - Fyrirspurn um hljóðgirðingu
Deiliskipulag Hraunsholts vestra gerir ráð fyrir hljóðskermun en ekki á þessum stað. Fyrirspurn vísað til bæjarverkfræðings.
|
21.5. 2111099 - Langamýri 22 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn frá eiganda einnar íbúðar í fjölbýlishúsinu þar sem greint er frá því að bílastæði hafi verið útbúið á lóðinni án samþykkis annarra íbúa eða sveitarfélagsins.
Svar: Hvorki mæliblað né aðalteikningar hússins gera ráð fyrir bílastæði við hlið bílageymslu og er notkun sem lýst er í erindi ekki í samræmi við samþykktir. Ef sótt er um leyfi fyrir umræddu bílastæði þarf samþykki húsfélags að liggja fyrir. Umsókn þess efnis kallar á deiliskipulagbreytingu sem vísað yrði til grenndarkynningar.
|
21.6. 2110079 - Efstilundur 5 - Tilkynning um framkvæmdir
Sækja þarf um deiliskipulagsbreytingu og leggja fram uppdrátt sem er hæfur til grenndarkynningar.
|
21.7. 2111042 - Móaflöt 6 stækkun á húsi - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um viðbyggingu að sunnanverðu.
Svar: Viðbygging er innan byggingarreits og stærð húss eftir stækkun innan marka hámarksnýtingarhlutfalls sem skilgreint er í deiliskipulagi Flata.
Tillaga að breytingu kallar ekki á deiliskipulagsbreytingu. Sækja þarf um byggingarleyfi til byggingarfulltrúa.
|
21.8. 2110138 - Markarflöt 57 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga og umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits að norðarverðu sem nemur 76 fermetrum. Lengd hans yrði 19 m en dýpt 4 m. Fjarlægð frá byggingarreit yrði 5 metrar í stað 9.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.greinar skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Markarflatar 55 og Sunnuflatar 33, 35 og 37.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
|
21.9. 2108222 - Sunnuflöt 24 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagi deiliskipulags Flata sem nær til lóðarinnar Sunnuflöt 24 að lokinni grenndarkynningu. Frestur til að skila inn athugasemdum rann út 22.október. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting á deiliskipulagi Flata.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
|
21.10. 2107384 - Sunnakur 3 - Umsögn vegna lóðafrágangs - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um lóðarfrágang einbýlishússins Sunnakur 3. Lögð fram teikning með tillögu að lóðarfrágangi.
Svar: Baðhús stendur utan byggingarreits og við lóðarmörk, hæð veggja innan lóðarmarka og á lóðarmörkum er hærri en samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar gerir ráð fyrir. Nauðsynlegt er er að hönnuðir kynni sér deiliskipulagsákvæði og samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar.
Tillögu að útfærslu lóðar hafnað.
|
21.11. 2110336 - Grímsgata 2-4 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
|
21.12. 2109063 - Hraungata 10 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir breytingum á einbýlishúsinu Hraungata 10.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að lagnarýmum í kjallara sé breytt í íverurými þar sem heimilt er að reisa 2-3 hæða hús á lóðinni samkvæmt deiliskipulagi. Þar sem deiliskipulag gerir ekki ráð fyrir kjöllurum þarf að breyta skilgreiningum á hæðum og kalla þá hæð sem nú er sótt um 1.hæð o.s.f.v. Í deiliskipulag er kveðið á um að 1 íbúð skuli vera í húsinu. Sýna þarf á uppdrætti að innangengt sé á milli 1.hæðar og 2.hæðar.(óuppfyllts rýmis og 1.hæðar skv samþykktum teikningum)
Í umsókn um byggingarleyfi er sótt um tegund byggingar sem íbúðar og gistihús. Ekki er hægt að fallast á að húsið sé skilgreint sem gistihús og skal öll sala á gistingu í húsinu vera innan ákvæða um heimagistingar sbr.lög um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.85/2007.
|
21.13. 2110242 - Hraungata 44 steypt bílaplan - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um útfærslu á steyptu bílastæði lóðarinnar Hraungata 44 sem gerir ráð fyrir móttaka á ofanvatni innan lóðar.
Svar: Með vísan í afgreiðslu skipulagsnefndar og bæjarstjórnar vegna Kinnargötu 26 gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað ofangreinda útfærslu á bílastæði varðar þar sem að móttaki ofanvatns er innan lóðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
|
21.14. 2110246 - Hraungata 46 - Breyting á bílaplani
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um útfærslu á steyptu bílastæði lóðarinnar Hraungata 44 sem gerir ráð fyrir móttaka á ofanvatni innan lóðar.
Svar: Með vísan í afgreiðslu skipulagsnefndar og bæjarstjórnar vegna Kinnargötu 26 gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað ofangreinda útfærslu á bílastæði varðar þar sem að móttaki ofanvatns er innan lóðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
|
21.15. 1905048 - Maríugata 30-32 - Umsókn um byggingarleyfi
Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við lóðaruppdrátt. Skoða þarf þó ákvæði um gróður á lóðarmörkum að götu eins og bent er á í umsögn deiliskipulagshöfundar.
|
21.16. 2110106 - Víkurgata 22 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Með vísan í umsöng deiliskipulagshöfundar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað þakhalla á sólskála varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
|
|
|
|