Árangur íþróttafólks úr Garðabæ
ÍTG leitar upplýsinga um árangur íþróttafólks í íþróttagreinum sem ekki eru stundaðar í Garðabæ.
-
Áhorfendur á íþróttahátíð Garðabæjar
- Landsliðsþátttaka: Óskað er eftir upplýsingum um hverjir hafi keppt í fyrsta skipti með A-landsliði eða U-landsliðum. Viðurkenning er veitt það ár sem einstaklingur nær fyrst að keppa með landsliði.
- Verðlauna á erlendum vettvangi s.s. HM, EM, NM eða sambærilegum mótum hvort heldur er sem einstaklingar, par eða í liðakeppni.
- Framúrskarandi árangur: Flokkar eða einstaklingar sem unnið hafa til Íslands-, bikar- eða deildarmeistaratitla, eða ígildi þeirra og tilgreina nafn og kennitölu þeirra.
Upplýsingar sendist á netfangið karijo@gardabaer.is fyrir 1. desember nk.
Íþróttafulltrúi Garðabæjar