12. feb. 2019

Auglýst er eftir umsóknum í Þróunarsjóð grunnskóla í Garðabæ

Garðabær auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar úr Þróunarsjóði grunnskóla Garðabæjar. 

Garðabær auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar úr Þróunarsjóði grunnskóla Garðabæjar. Þróunarsjóðnum er ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla í Garðabæ. Einstaka kennarar, kennarahópar, aðrir fagaðilar sem starfa við skóla í Garðabæ, einn skóli eða fleiri skólar/
fagaðilar í sameiningu, fræðslu og menningarsvið í samstarfi við skóla geta sótt um styrk í sjóðinn.
Til úthlutunar árið 2019 eru 25 milljónir.

Áhersluþættir Þróunarsjóðs grunnskóla 2019 - 2020:

· Vellíðan nemenda
· Framsæknir kennsluhættir sem byggja m.a. á nýtingu tækni og teymiskennslu
· Tenging við fræðasamfélagið
· Samstarf skóla og skólastiga

Einnig er hægt að sækja um styrki til verkefna sem styðja við skólanámskrá og sérstöðu hvers skóla.
Umsóknir skulu hafa borist fyrir 1. mars og verður þeim svarað fyrir 31. mars.

Frekari upplýsingar veitir:
Katrín Friðriksdóttir, deildarstjóri skóladeildar Garðabæjar, s. 525 8500.
Sjá einnig upplýsingar um úthlutun fyrri ára hér á vefnum. 

Reglur:

Reglur þróunarsjóðs grunnskóla og þróunarsjóðs leikskóla eru aðgengilegar á vefnum á síðunni stjórnsýsla/reglugerðir undir flokknum fræðslu- og menningarmál.

Eyðublöð:

Umsókn um styrk úr þróunarsjóði grunnskóla í Garðabæ - rafræn umsókn á Mínum Garðabæ