27. sep. 2021

Fræsun á hringtorgi á Arnarnesvegi

Mánudaginn 27. september er stefnt á að fræsa hringtorg á Arnarnesvegi við Fífuhvammsveg og Bæjarbraut.

Mánudaginn 27. september er stefnt á að fræsa hringtorg á Arnarnesvegi við Fífuhvammsveg og Bæjarbraut. Hringtorginu verður lokað í áföngum en umferð verður stjórnað eftir þörfum framhjá framkvæmdasvæði. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 11:00 til kl. 16:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.