26. jún. 2023

Fræsun malbiks á hringtorginu á Bæjarbraut við Karlabraut

Næstkomandi mánudag, 26. júní mun Loftorka vinna við fræsun malbiks á hringtorginu á Bæjarbraut við Karlabraut.

Næstkomandi mánudag, 26. júní mun Loftorka vinna við fræsun malbiks á hringtorginu á Bæjarbraut við Karlabraut.

Byrjað verður um klukkan 11 og unnið fram eftir degi, eða til klukkan 15.30.

Götukaflinn verður lokaður fyrir alla umferð á meðan framkvæmdum stendur en hjáleið verður merkt, eins og sýnt er á meðfylgjandi lokunarplani.