10. mar. 2026

Framboðsfrestur til sveitarstjórnarkosninga í Garðabæ

Framboðsfrestur til sveitarstjórnarkosninga í Garðabæ, er fram eiga að fara laugardaginn 16. maí 2026, rennur út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026.

Frá yfirkjörstjórn Garðabæjar:

Framboðsfrestur til sveitarstjórnarkosninga í Garðabæ, er fram eiga að fara laugardaginn 16. maí 2026, rennur út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026.

Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum föstudaginn 10. apríl 2026 kl. 11:00-12:00 í fundarsal bæjarstjórnar, Sveinatungu við Garðatorg.

Tilkynningu um framboð er einnig hægt að skila rafrænt fyrir ofangreindan tímafrest á netfangið yfirkjorstjorn@gardabaer.is.

Í 1. gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022 kemur fram að bæjarstjórn Garðabæjar skuli skipuð ellefu fulltrúum. Á framboðslista þurfa því að vera að minnsta kosti 11 nöfn og að hámarki 22 nöfn. Enginn má bjóða sig fram á nema einum lista.

Eftirtalin gögn skulu fylgja tilkynningu um framboð:

  • a. Upplýsingar um heiti stjórnmálasamtakanna og listabókstaf þeirra, samkvæmt skrá ráðuneytisins, sbr. lög um starfsemi stjórnmálasamtaka, eða þegar um stjórnmálasamtök er að ræða sem ekki hafa skráðan listabókstaf, beiðni til yfirkjörstjórnar um úthlutun listabókstafs, sbr. 23. gr.
  • b. Framboðslisti viðkomandi stjórnmálasamtaka, sbr. 19. gr.
  • c. Yfirlýsingar allra þeirra sem á framboðslistanum eru um að þeir hafi tekið sæti á listanum, sbr. 20. gr.
  • d. Meðmæli með framboðslistanum, sbr. 21. gr.
  • e. Upplýsingar um hverjir séu umboðsmenn listans, sbr. 22. gr.

Á framboðslista skal tilgreina skýrlega nafn og kennitölu frambjóðanda, lögheimili og stöðu eða starfsheiti.

Rafrænt meðmælakerfi hefur verið opnað sbr. auglýsingu á vef landskjörstjórnar. Í meðmælakerfinu geta kjósendur með lögheimili í Garðabæ gefið yfirlýsingu um stuðning við framboð í sveitarstjórnarkosningunum í Garðabæ. Rafræn söfnun meðmæla fer fram á island.is og skulu bæði þeir sem safna meðmælum og meðmælendur nota rafræn skilríki við innskráningu á island.is.

Meðmælum er einnig hægt að safna á blaði. Kjósendur undirrita þá með eigin hendi yfirlýsingu á blaði, um stuðning við framboð í sveitarstjórnarkosningum í Garðabæ. Á vef landskjörstjórnar eru birt sýnishorn af eyðublöðum til söfnunar meðmæla.

Hver kjósandi má einvörðungu mæla með einu framboði við sömu kosningar. Frambjóðendur geta ekki verið meðmælendur eigin framboðs.

Meðmælendur þurfa að vera að lágmarki 80 en að hámarki 160.

Varðandi nánari skilyrði og fyrirmæli um framboð er vísað til VII. kafla kosningalaga nr. 112/2021 og reglugerðar um söfnun meðmæla og skil framboða og framboðslista fyrir kosningar nr. 254/2024. Einnig er vísað til upplýsinga sem fram koma á vef landskjörstjórnar landskjorstjorn.is.

Garðabæ, 25. febrúar 2026

Yfirkjörstjórn Garðabæjar

Soffía Eydís Björgvinsdóttir

Jóhann Steinar Ingimundarson

Gunnar Hólmsteinn Ársælss