1. okt. 2025

Heita­vatns­laust á Álfta­nesi

Vegna viðgerðar Veitna er heitavatnslaust á Álftanesi til klukkan 18:00.

Vegna viðgerðar er heitavatnslaust á Álftanesi miðvikudaginn 1. október, frá klukkan 14:30 til 18:00. Sjá nánar á vef Veitna.

Sundlaug Álftaness er lokuð á meðan á viðgerðinni stendur.

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Húseigendum er bent á að huga að innanhússkerfum.