27. feb. 2024

Heitavatnslaust á Álftanesi

Bilun er í heitavatnslögn á Álftanesi og lokað verður fyrir heitt vatn á Álftanesi í dag þriðjudag 27. febrúar. Vegna þessa þarf að loka sundlauginni á Álftanesi kl. 14:00 í dag.

Bilun er í heitavatnslögn á Álftanesi og lokað verður fyrir heitt vatn á Álftanesi í dag þriðjudag 27. febrúar. Vegna þessa þarf að loka sundlauginni á Álftanesi kl. 14:00 í dag.

Lokað verður fyrir heita vatnið eftir klukkan 14 og heitavatnslaust verður frameftir degi á Álftanesi. Húseigendum er bent á að huga að innanhússkerfum.

Athugð að skrúfa fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju.  

Unnið er að viðgerð hjá Veitum en óljóst er á þessari stundu hversu langan tíma það tekur.
Allar nánari upplýsingar um heitavatnsleysið má sjá hér á vef Veitna.