20. maí 2022

Heitavatnslaust á Álftanesi, Lynghólum og Hraunhólum 24. maí

Heitavatnslaust verður á Álftanesi og í Lynghólum og Hraunhólum þriðjudaginn 24. maí kl. 04:00-17:00. Sundlaugin á Álftanesi verður lokuð þann dag. 

  • Heitavatnslaust á Álftanesi, Lynghólum og Hraunhólum þriðjudaginn 24. maí frá kl. 04-17
    Heitavatnslaust á Álftanesi, Lynghólum og Hraunhólum þriðjudaginn 24. maí frá kl. 04-17

Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust á Álftanesi og í Lynghólum og Hraunhólum þann 24.05.22 frá klukkan 04:00 til klukkan 17:00. Sjá nánar í tilkynningu á vef Veitna. 

ATH Sundlaugin á Álftanesi verður lokuð 24. maí vegna þessa en opið verður í heilsurækt og íþróttasal en ekki opið í sturtur. 

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.

Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.