17. feb. 2022

Innritun í grunnskóla í Garðabæ fyrir skólaárið 2022-2023

Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2016) og 8. bekk (f. 2009) fer fram dagana 7. - 11. mars nk. Innritað er hér á þjónustugátt Garðabæjar.

  • Innritun í grunnskóla
    Innritun í grunnskóla Garðabæjar fer fram dagana 1.-10. mars nk.

Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2016) og 8. bekk (f. 2009) fer fram dagana 7. - 11. mars nk. Innritað er á þjónustugátt Garðabæjar.
Athugið að nauðsynlegt er að innrita þá nemendur í 8. bekk sem skipta um skóla. Innritun lýkur 11. mars nk.
Sömu daga fer fram skráning vegna nemenda í 2.-9. bekk sem óska eftir að flytjast á milli skóla. Áríðandi er að foreldrar tilkynni óskir um flutning milli skóla fyrir 11. mars nk. Innritun þeirra barna sem óska eftir dvöl á frístundaheimilum Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Urriða -
holtsskóla á næsta ári fer einnig fram þessa sömu daga. Hún er einnig á þjónustgátt Garðabæjar. Sama gildir fyrir sérstækt frístundaúrræði Garðahraun sem er fyrir nemendur í 5.-10. bekk Mikilvægt er að sótt sé sem fyrst um dvöl á frístundaheimilum. 

Upplýsingar um kynningar hjá grunnskólum í Garðabæ í mars fyrir forráðamenn nýnema.

Nánari upplýsingar má nálgast í skólunum:

  • Álftanesskóli , s. 540 4700, alftanesskoli.is
  • Flataskóli , s. 513 3500, flataskoli.is
  • Garðaskóli , s. 590 2500, gardaskoli.is
  • Hofsstaðaskóli , s. 590 8100, hofsstadaskoli.is
  • Sjálandsskóli , s. 590 3100, sjalandsskoli.is
  • Urriðaholtsskóli , s. 591 9500, urridaholtsskoli.is
  • Barnaskóli Hjallastefnunnar , s. 555 7710, bskgbr.hjalli.is
  • Alþjóðaskólinn sími 690 3100, internationalschool.is

 
Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í grunnskólum annarra sveitarfélaga og sjálfstætt reknum grunnskólum skólaárið 2022-2023 er til 1. apríl og skulu umsóknir
berast skóladeild Garðabæjar. Vakin er athygli á að umsókn fyrir nemanda sem stundar nám í grunnskóla utan Garðabæjar þarf aðendurnýja fyrir hvert skólaár.