Malbikun á Hraunholtsbraut
Á morgun, þriðjudaginn 17. maí mun Loftorka vinna við malbikun á Hraunholtsbraut, milli Hlíðarás og Vífilsstaðavegar, ef veður leyfir.
-
Malbikun á Hraunsholtsbraut 12. maí 2022
Viðhald gatna í Garðabæ heldur áfram á morgun.
Á morgun, þriðjudaginn 17. maí mun Loftorka vinna við malbikun á Hraunholtsbraut, milli Hlíðarás og Vífilsstaðavegar, ef veður leyfir.
Byrjað verður um klukkan 9 og unnið fram eftir degi. Götukaflinn verður lokaður fyrir alla umferð á meðan framkvæmdum stendur, en hjáleið verður merkt.
Sjá má staðsetningu á götukaflanum og lokun hans á meðfylgjandi mynd.