5. jún. 2023

Malbikun á Suðurhrauni

Götukaflinn verður lokaður fyrir alla umferð á meðan framkvæmdum stendur, en hjáleið verður um Miðhraun

Þriðjudaginn 6. júní mun Loftorka vinna við malbikun á Suðurhrauni, frá hringtorgi við Austurhraun og að Miðhrauni, ef veður leyfir.

Byrjað verður um klukkan 11 og unnið fram eftir degi.

Götukaflinn verður lokaður fyrir alla umferð á meðan framkvæmdum stendur, en hjáleið verður um Miðhraun eins og sýnt er á meðfylgjandi mynd