Malbikun við Dalsbyggð
Mánudag og þriðjudag, 3. og 4. júní mun Loftorka vinna við malbikun á Dalsbyggð - ef veður leyfir.Áætlað er að framkvæmdir verði með eftirfarandi hætti:
Mánudagur, 3.júní:
Dalsbyggð botnlangi nr. 1-7
Dalsbyggð botnlangi nr. 17-23
Dalsbyggð botnlangi nr. 9-15
Þriðjudagur, 4.júní:
Dalsbyggð – aðalgata
Áætlað er að hefja framkvæmdir um klukkan 9 báða dagana og unnið fram eftir degi, til ca. 16-17.
Götukaflarnir verða lokaðir fyrir alla umferð á meðan framkvæmdum stendur, sjá meðfylgjandi lokunarplön.
Á mánudeginum, þegar botnlangar verða lokaðir fyrir alla umferð, verður Dalsbyggð aðalgata opin og geta íbúar lagt bílunum sínum þar.
Á þriðjudeginum, verður hins vegar Dalsbyggð aðalgata lokuð fyrir alla umferð og þ.a.l. líka botnlangarnir.
Íbúum er bent á að leggja bílum sínum á bílastæðum í kringum svæðið og nýta sér góðar gönguleiðir í hverfinu, rétt á meðan framkvæmd stendur yfir.