Markaðskönnun fyrir nýjan vef Garðabæjar
Garðabær hefur hafið undirbúning fyrir smíði á nýjum vef sveitarfélagsins og leitar núna að áhugasömum aðilum til að taka þátt í markaðskönnun vegna hönnunar og forritunar.
Garðabær er þekktur fyrir að veita góða nærþjónustu og eiga gott samtal við íbúa. Markmið með nýjum vef er að bæta enn þjónustu bæjarins með aðgengilegum og upplýsandi vef sem stuðlar jafnframt að aukinni sjálfsafgreiðslu og nýtir framúrskarandi lausnir til að mæta þörfum bæjarbúa. Nýr vefur mun leggja grunn að heildstæðu viðmóti fyrir allar stafrænar lausnir bæjarins.
Við köllum eftir samstarfsaðilum sem vilja fara í þessa vegferð með okkur og búa yfir þessum kostum:
-
Hafa reynslu af því að smíða opinbera vefi
-
Þekkja til lausna fyrir sveitarfélög og samstarfs þeirra
-
Búa yfir öflugu og reyndu teymi hönnuða og forritara
-
Hafa reynslu af vinnu við smíði hönnunarkerfa
-
Hafa reynslu af framleiðslu vefja í opnum vefumsjónarkerfum (e. open-source)
Óskað er eftir því að fyrirtæki sendi hnitmiðaða yfirlýsingu um áhuga á verkefninu með rökstuðningi um hæfni út frá ofantöldum skilyrðum.
Yfirlýsinguna skal senda á Ágúst Guðmundsson, sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs, á netfangið agustg@gardabaer.is í síðasta lagi 4. júlí 2025.
Við erum opin fyrir því að fyrirtæki sem sérhæfa sig annars vegar í forritun og hins vegar í hönnun geti parað sig saman og lýst yfir áhuga á að vinna verkefnið sameiginlega.
Allt að fimm mögulegum samstarfsaðilum verður boðið að kynna sig nánar og þá nálgun sem þeir sjá fyrir sér ásamt því að senda inn tilboð í verkið. Þessir aðilar fá jafnframt aðgang að þarfagreiningu verkefnisins.