Námskeið í PMTO – Foreldrafærni
PMTO-námskeiðið miðar að því að kenna skilvirkar aðgerðir í uppeldi og að efla foreldra í uppeldishlutverkinu.
Fræðslu- og frístundasvið og velferðarsvið Garðabæjar bjóða upp á PMTO-námskeið fyrir foreldra barna aldrinum 4-12 ára með vægan/miðlungs samskipta- og hegðunarerfiðleika. Námskeiðið miðar að því að kenna skilvirkar aðgerðir í uppeldi og að efla foreldra í uppeldishlutverkinu.
Um námskeiðið
PMTO stendur fyrir Parent Management Training – Oregon, um sannprófað meðferðarprógramm er að ræða, það er ætlað foreldrum barna með samskipta- og/eða hegðunarerfiðleika. Úrræðið hentar foreldrum barna á leik -og grunnskólaaldri. Rannsóknir hafa leitt í ljós að aðferðir PMTO draga úr hegðunarerfiðleikum barna og hefur auk þess jákvæð áhrif á samskipti innan fjölskyldu og frammistöðu barna í námi.
Í PMTO er unnið með verkfæri sem efla foreldra í uppeldishlutverkinu og stuðla að jákvæðum samskiptum foreldra og barna. Áhersla er lögð á skemmtilega og jákvæða nálgun.
Meðal verkfæra sem unnið er með eru:
Skýr fyrirmæli
Hvatningu
Virk samskipti
Tilfinningastjórnun
Mörk
Lausnaleit
Staðsetning námskeiðs
Námskeiðið verður haldið í Sveinatungu, Garðatorgi 7, á miðvikudögum frá kl. 19:30-22.00. Um er að ræða átta skipti, haldið 10. september til 29. október.
Æskilegt er að báðir foreldrar mæti á námskeiðið og áhersla er lögð á að foreldrar mæti í alla tímana. Á námskeiðinu er foreldrum veittur stuðningur á milli tíma í formi símtala og ráðgjafar eftir þörfum, auk þess sem unnið er með verkfæri hverju sinni
Upplýsingar og skráning
Skráning fer fram í gegnum Þjónustugátt Garðabæjar á eyðublaði undir: 05. Félagsþjónusta.
Umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst 2025
Haft verður samband við umsækjendur dagana 25. - 29. ágúst.
Þátttökugjald er 25.000 kr. fyrir fjölskyldu.
Frekari upplýsingar í síma 525-8500 eða á netfangið berglindsv@gardabaer.is
Leiðbeinendur námskeiðs
Leiðbeinendur á námskeiðinu verða Berglind B. Sveinbjörnsdóttir uppeldisfræðingur M.ed. og PMTO meðferðaraðili og Stefanía Dögg Jóhannesdóttir, uppeldisfræðingur M.A. og PMTO meðferðaraðili.