Kjörfundur í Garðabæ vegna kosninga til Alþingis
KJÖRFUNDUR
Kjörfundur vegna kosninga til Alþingis, er fram eiga að fara 29. október 2016 verður í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og í Álftanesskóla.
Í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ verður kosið í eftirfarandi kjördeildum.
I. Kjördeild Aftanhæð – Borgarás
(Íslendingar búsettir erlendis)
II. Kjördeild Breiðakur - Garðatorg
III. Kjördeild Gígjulundur - Hrísholt
IV. Kjördeild Hrísmóar - Langalína
V. Kjördeild Langamýri – Melhæð
VI. Kjördeild Mosprýði - Stórás
VII. Kjördeild Strandvegur – Ögurás
(Húsanöfn og bæir)
Í Álftanesskóla verður kosið í eftirfarandi kjördeildum.
I. Kjördeild Asparholt – Lambhagi
II. Kjördeild Litlabæjarvör – Þóroddakot
(Húsanöfn og bæir)
Athygli er vakin á því að Íslendingar sem búsettir eru erlendis og áttu síðast lögheimili hér á landi í Sveitarfélaginu Álftanesi eða Garðabæ eru allir á kjörskrá í I. kjördeild í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ.
Kjörfundur mun hefjast kl. 09:00 og standa til kl. 22:00.
Kjörstjórn Garðabæjar mun hafa aðsetur á kennarastofu Fjölbrautaskólans í Garðabæ og hverfiskjörstjórn Álftaness á kennarastofu í tónlistarskóla meðan á kjörfundi stendur.
Talning atkvæða fer fram hjá yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis sem hefur aðsetur í Kaplakrika, Hafnarfirði.
Kjörstjórn Garðabæjar