4. mar. 2022

Rekstur leikskóla í Garðabæ

Garðabær auglýsir eftir áhugasömum aðilum til að taka að sér rekstur 6 deilda leikskóla í Urriðaholti.

  • Vinningstillaga leikskóli í Urriðaholti
    Leikskóli í Urriðaholti -Vinningstillaga: 1. verðlaun

Haustið 2022 mun 6 deilda leikskóli taka til starfa við Kauptún í Garðabæ í húseiningum sem verða reistar á staðnum. Leikskólinn er undanfari nýs 6 deilda leikskóla fyrir allt að 120 börn við Holtsveg í Urriðaholti sem verður tekinn í notkun haustið 2023.

Óskað er eftir tillögum í greinargerð um hugmyndir að rekstri og stefnu nýs skóla og upplýsingar um reynslu aðila að rekstri leikskóla og starfsemi fyrir börn. Greinargerðin þarf að taka mið af lögum um leikskóla nr. 90/2008, aðalnámskrá leikskóla frá 2011 og menntastefnu Garðabæjar.
Urriðaholt er eitt nýjasta hverfi Garðabæjar þar sem íbúðabyggð er í örum vexti. Hátt í 2500 manns búa nú í hverfinu og gert er ráð fyrir allt að 4500 íbúum í Urriðaholti þegar það verður fullbyggt. Í uppbyggingu Urriðaholts hefur verið mikil áhersla á að byggðin sé umhverfisvæn og í góðum tengslum við náttúruna í kring.

Haldin var hönnunarsamkeppni árið 2021 um byggingu á nýjum leikskóla í Urriðaholti og byggingarframkvæmdir hefjast á þessu ári. Nýi leikskólinn verður staðsettur við Holtsveg, neðan götu þar sem lóð opnast út að grænu svæði sem liggur frá efri hluta holtsins niður í átt að Urriðavatni og Kauptúni. Við hönnun leikskólans er horft til þess að námsumhverfi barna sé tengt náttúru og umhverfi þar sem ræktun og sjálfbærni eru meðal áhersluþátta í skólastarfinu. Áætluð heildarstærð leikskólans er um 1.400 m² og stefnt er að því að byggingin verði vistvottuð.

Áhugasamir sendi inn erindi um áhuga sinn á að taka að sér reksturinn með tillögum í greinargerð á netfangið eirikurbjorn@gardabaer.is fyrir 20. mars nk.

Upplýsingar um framkvæmdir við fyrirhugaða skólabyggingar og stefnu Garðabæjar í menntamálum veitir Eiríkur Björn Björgvinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar í síma 525-8500.