20. jún. 2022

Snyrtilegar lóðir 2022

Umhverfisnefnd óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis og fyrirtækis 2022. Einnig er leitað ábendinga um snyrtileg opin svæði, snyrtilega götu og framlag til umhverfismála.

  • Kaldakur
    Kaldakur - snyrtilegasta gatan 2020

Umhverf­isnefnd Garðabæjar veitir árlega umhverfisviðurkenningar og auglýsir eftir ábendingum frá bæjarbúum um:

  • Snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis
  • Snyrtilegar lóðir fyrirtækis 
  • Snyrtileg opin svæði
  • Snyrtilega götu og 
  • Framlag til umhverfismála

Umhverfisnefnd Garðabæjar veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi.

Hægt er að skila ábendingum í þjónustuver Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða senda tölvupóst á netfangið: gardabaer@gardabaer.is fyrir 13. júlí nk.