3. okt. 2019

Þátttaka í notendaráði um málefni fatlaðs fólks

Við óskum eftir fólki sem vill starfa í notendaráði og hafa þannig áhrif á málefni fatlaðs fólks hjá Garðabæ. Starf notendaráðs sem er skipað fötluðu fólki, felst í að gefa álit sitt á stefnumótun um málefni fatlaðs fólks í Garðabæ.

  • Séð yfir Garðabæ
    Séð yfir Garðabæ

Vilt þú taka þátt í notendaráði um málefni fatlaðs fólks í Garðabæ?

Við óskum eftir fólki sem vill starfa í notendaráði og hafa þannig áhrif á málefni fatlaðs fólks hjá Garðabæ. Starf notendaráðs sem er skipað fötluðu fólki, felst í að gefa álit sitt á stefnumótun um málefni fatlaðs fólks í Garðabæ. Notendaráðið getur einnig tekið upp mál að eigin frumkvæði og rætt ábendingar og tillögur sem koma frá notendum þjónustunnar, þó ekki er varða einstaklingsmál.

Nánari upplýsingar gefur Pála Marie Einarsdóttir, ráðgjafarþroskaþjálfi fjölskyldusviðs Garðabæjar, í síma 525-8500 eða á netfanginu palaei@gardabaer.is

Notendaráð um málefni fatlaðs fólks

Samkvæmt lögum nr.38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og jafnframt 8. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (nr 40/1991, með síðari breytingum) sem tóku gildi 1. október 2018, skulu sveitarfélög hafa samráð við notendur. Samráð skal haft við notendur félagsþjónustunnar með það að markmiði að þeir séu virkir þátttakendur í undirbúningi ákvörðunar um þjónustu og hvernig henni verður háttað. Þá skal hafa samráð við notendur við almenna stefnumörkun innan sveitarfélagsins. Sveitarfélög skulu a.m.k. árlega funda með hagsmunasamtökum notenda félagsþjónustunnar og skulu starfrækja sérstök notendaráð sem tryggi aðkomu hagsmunasamtaka notenda við stefnumörkun og áætlanagerð sveitarfélagsins í málefnum er varðar meðlimi þeirra. Tryggja skal þátttakendum stuðning og þjálfun til virkrar þátttöku í notendasamráði.

Hlutverk notendaráðs er að gera fötluðu fólki kleift að hafa áhrif á skipulag og framkvæmd þjónustu sveitarfélaganna. Notendaráð á að koma rödd fatlaðra íbúa á framfæri og stuðla að jafnrétti þeirra á við aðra, fylgjast með stefnumótun og þróun hugmyndafræði er varða réttindi fatlaðs fólks og vera leiðandi í framþróun málefna þess. Notendaráðið getur einnig tekið upp mál að eigin frumkvæði og rætt ábendingar og tillögur sem koma frá notendum þjónustunnar, þó ekki er varða einstaklingsmál. Starfsmaður fjölskyldusviðs er starfsmaður ráðsins, boðar til funda og ritar jafnframt fundargerðir þess.