1. júl. 2024

Þróunarsjóður grunnskóla

Garðabær auglýsir eftir umsóknum til síðari úthlutunar úr þróunarsjóði grunnskóla Garðabæjar. 

  • Nýsköpun og vöruhönnun - Garðaskóli - Hönnunarsafn

Til annarrar úthlutunar árið 2024 eru 11,5 milljónir.

 Áhersluþættir Þróunarsjóðs grunnskóla 2024 – 2025 eru:

  • Samskipta-, samkenndar- og leiðtogaþjálfun. Vellíðan í skóla.
  • Læsi og íslenska sem annað tungumál.
  • Menntun til farsældar barna og ungmenna í barnvænu samfélagi.
  • Framsæknir kennsluhættir og samvinna kennara/fagaðila, s.s. áhersla á tækni, nýsköpun og raungreinakennslu.
  • Heilsueflandi skólastarf andlega, líkamlega og félagslega

Nánari upplýsingar um áherslur og reglur sjóðsins má finna hér á vef þróunarsjóðs leik- og grunnskóla Garðabæjar.

Einnig er hægt að sækja um styrki til verkefna sem styðja við skólanámskrá og sérstöðu hvers skóla. Við afgreiðslu er m.a. horft til tengingar við fræðasamfélagið og samstarfs milli skóla og skólastiga. 

Umsóknir skulu hafa borist fyrir 15. september og verður þeim svarað fyrir 15. október. 
Umsókn um styrk úr þróunarsjóði grunnskóla í Garðabæ - rafræn umsókn á Þjónustugátt Garðabæjar