21. feb. 2023

Yfirlit kynninga grunnskóla í Garðabæ vegna innritunar fyrir haustið 2023

Grunnskólarnir í Garðabæ bjóða í heimsókn og verða með opin hús/kynningar í húsnæði skólanna. Gestum gefst þá kostur á að skoða skólana í fylgd starfsmanna og/eða nemenda.

  • Ný fimm ára deild við Sjálandsskóla
    Deildin tekur til starfa í haust og innritun er hafin. Starfið í leikskóladeildinni samtvinnast markvisst við grunnskólann og börnin taka þátt.

Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2017) og 8. bekk (f. 2010) fer fram dagana 1. - 10. mars nk. Innritað er á þjónustugátt Garðabæjar.

Athugið að nauðsynlegt er að innrita þá nemendur í 8. bekk sem skipta um skóla. Innritun lýkur 10. mars nk.
Sömu daga fer fram skráning vegna nemenda í 2.-9. bekk sem óska eftir að flytjast á milli skóla. Áríðandi er að foreldrar tilkynni óskir um flutning milli skóla fyrir 10. mars nk. Innritun þeirra barna sem óska eftir dvöl á frístundaheimilum Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Urriðaholtsskóla á næsta ári fer einnig fram þessa sömu daga. Hún er einnig á þjónustugátt Garðabæjar. Sama gildir fyrir sérstakt frístundaúrræði Garðahraun sem er fyrir nemendur í 5.-10. bekk.

Mikilvægt er að sótt sé sem fyrst um dvöl á frístundaheimilum. Ef umsóknir fyrir næsta skólaár berast fyrir 15. júní fær barnið pláss á umbeðnu frístundaheimili. Umsóknir sem berast eftir þann tíma eru afgreiddar með tilliti til starfsmannahalds hverju sinni.

Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í grunnskólum annarra sveitarfélaga og sjálfstætt reknum grunnskólum skólaárið 2022-2023 er til 1. apríl og skulu umsóknir
berast fræðsluskrifstofu Garðabæjar. Vakin er athygli á að umsókn fyrir nemanda sem stundar nám í grunnskóla utan Garðabæjar þarf að endurnýja fyrir hvert skólaár.

Kynningar í grunnskólum

Grunnskólarnir í Garðabæ bjóða í heimsókn og verða með opin hús/kynningar í húsnæði skólanna. Gestum gefst þá kostur á að skoða skólana í fylgd starfsmanna og/eða nemenda. Allir grunnskólarnir bjóða foreldrum og forráðamönnum einnig að koma í heimsóknir á öðrum tíma. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu skólanna sé óskað eftir því. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að skoða vefsíður skólanna. Þar má finna gagnlegar upplýsingar og margskonar fróðleik um skólastarfið.


OPIÐ HÚS FYRIR FORELDRA OG FORRÁÐAMENN VÆNTANLEGRA NEMENDA Í 1.B. EÐA 8.B. VERÐA Á EFTIRFARANDI TÍMUM:

ALÞJÓÐASKÓLINN

Foreldrar og forráðamenn er ávallt velkomnir á þeim tíma sem hentar þeim best en nauðsynlegt er
að hafa samband á undan til að bóka kynningu og leiðsögn um skólann.
Sími: 594-3100
Internationalschool.is

ÁLFTANESSKÓLI

Opið hús/kynning verður miðvikudaginn 8. mars, kl: 16:30-17:30
S. 540 4700 , netfang: alftanesskoli@alftanesskoli.is
alftanesskoli.is

BARNASKÓLI HJALLASTEFNUNNAR

Opið hús/kynning verður þriðjudaginn 7. mars kl: 17:00-18:00
S. 555 7710 , netfang: barnaskolinngbr@hjalli.is
bskgbr.hjalli.is

FLATASKÓLI

Opið hús/kynning verður fimmtudaginn 9. mars kl: 17:00-18:00
S. 513 3500 , netfang: flataskoli@flataskoli.is
flataskoli.is

GARÐASKÓLI

Opið hús/kynningar verða fimmtudaginn 9. mars, kl: 17:00–18:00 og 20:00-21:00
S. 590 2500 , netfang: gardaskoli@gardaskoli.is
gardaskoli.is

HOFSSTAÐASKÓLI

Opið hús/kynningar verða mánudaginn 6. mars, kl: 17:30 –18 :30
S. 590 8100 , netfang: hskoli@hofsstadaskoli.is
hofsstadaskoli.is

SJÁLANDSSKÓLI

Opið hús/kynningar verða miðvikudaginn 8. mars, kl: 16:00-18:00
Kynningar fyrir 1. og 8. bekk fara fram á sama tíma.
S. 590 3100 , netfang: sjalandsskoli@sjalandsskoli.is
sjalandsskoli.is

URRIÐAHOLTSSKÓLI

Opið hús/kynningar verða fimmtudaginn 2. mars, kl: 17:00–18:00
S. 591 9500 , netfang: urriðaholtsskoli@urridaholtsskoli.is

urridaholtsskoli.is