Endurnýjun íþróttagólfs í íþróttamiðstöðinni Álftanesi
Umhverfis- og tæknisvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Íþróttagólf endurnýjað í íþróttamiðstöðinni Álftanesi.
Umhverfis- og tæknisvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Íþróttagólf endurnýjað í íþróttamiðstöðinni Álftanesi.
Verkið felst í að rífa núverandi íþróttagólf, innkaupum og lagningu á nýju íþróttagólfi með tilheyrandi búnaði fyrir Íþróttamiðstöðinna á Álftanesi við Breiðumýri 225.
Helstu magntölur eru:
- Endurnýjun íþróttagólfs: 1500 m2.
- Málun íþróttalína: 1680m.
Útboðsgögn verða einungis aðgengileg á rafrænu formi hér á vef Garðabæjar.
Helstu dagsetningar:
- Útboðsgögn aðgengileg á vef Garðabæjar frá 24. mars 2020.
- Opnun tilboða kl 14:00, miðvikudaginn............. 15. apríl 2020.
- Verklok .......................................................................... 21. ágúst 2020.
Tilboð skal afhenda á skrifstofu Strendings ehf, verkfræðiþjónustu, Fjarðargötu 13-15, 220 Hafnarfirði, fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 15. apríl 2020.
Umhverfis- og tæknisvið Garðabæjar.