Flóttamannavegur – Gatnamót við Urriðaholtsstræti
Auglýst er eftir tilboðum í verkið: Flóttamannavegur, gatnamót við Urriðaholtsstræti.
Vegagerðin og Garðabær bjóða hér með út gerð hringtorgs við gatnamót Flóttamannavegar og Urriðaholtsstrætis. Verkið felst í gerð hringtorgs á mótum Flóttamannavegar og Urriðaholtsstrætis í Garðabæ og tenginga við það ásamt gerð göngustíga.
Verkinu skal að fullu lokið 15. júní 2026.
Helstu magntölur má nálgast hérna.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 24. september 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. október 2025.