Garðabær – Hverfisgarður við Lynggötu

03. jún. 2021

Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið Hverfisgarður við Lynggötu.

Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið Hverfisgarður við Lynggötu.

Verkið felst í að gera almenningsgarð / leiksvæði á horni Lynggötu og Hellagötu og göngustíg að Dyngjugötu.

Helstu magntölur eru:

  • Gröftur og brottakstur á umfram jarðvegi 300 m2
  • Aðflutt fylling 360 m2
  • Ljósastólpar 11 stk.
  • Steyptir stoðveggir 20 m
  • Hellulögn 422 m2
  • Tröppur 38 stk.
  • Leiksvæði 92 m2
  • Leiktæki 4 stk.
  • Grasþakning 470 m2

Verklok eru 15. nóvember 2021.

Útboðsgögn má nálgast á rafrænu formi hér á vef Garðabæjar.

Tilboðum skal skilað á bæjarskrifstofu Garðabæjar, eigi síðar en fimmtudaginn 24. júní 2021 kl. 11:30, þar sem þau verða opnuð.

Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar

Útboðsgögn