Jarðvinna – Haustbraut 2

18. mar. 2026

Garðabær auglýsir eftir tilboðum í verkið: Haustbraut 2, jarðvinna og lagnir

Garðabær auglýsir eftir tilboðum í verkið: Haustbraut 2, jarðvinna og lagnir. Verkið felur í sér girðingu vinnusvæðis og jarðvinnu fyrir 600 m² búsetukjarna auk lagningu heimæðalagna og tenging við stofnlagnir. Aðgengi að lóðinni er um hringtorg á Vetrarbraut.

Helstu magntölur eru:

  • Girðing 240 m
  • Uppúrtekt úr lóð 2300 m3
  • Fyllingar 900 m3
  • Fráveitulagnir 60 m

Útboðið er almennt opið útboð.

Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og aðgengileg hér á utbodsgatt.is.

Tilboðum skal skila rafrænt undir vefslóð útboðsins eigi síðar en 30. mars 2026, kl. 11:00.