Klaustrið í Garðabæ

Markaðskönnun (RFI) vegna fyrirhugaðs útboðs á nýtingu húsnæðis

29. apr. 2024

Garðabær óskar eftir upplýsingum frá hæfum aðilum sem hafa áhuga á að taka þátt í samstarfsverkefni um kaup eða leigu, endurbætur, viðhald og rekstur á húsnæði Garðabæjar við Holtsbúð 87 í Garðabæ.

 Húsnæðið er betur þekkt undir heitinu Klaustrið og var áður í eigu Sankti Jósefssystra. Í kaupsamningi Garðabæjar og systranna er kvöð, sem gildir til ársins 2028, um að húsnæðið verði nýtt fyrir starfsemi í þágu aldraðra eða annarrar sambærilegrar starfsemi á sviði mannúðar, heilbrigðismála, barna eða unglinga. Húsnæðið hefur verið í takmarkaðri notkun undanfarið og þarfnast skv. fyrirliggjandi ástandsmati töluverðs viðhalds og endurnýjunar.

Leitað er að aðilum sem t.d. væru tilbúnir til að:

  •  Kaupa eða leigja húsnæðið að hluta eða í heild til að reka þar starfsemi sem rúmast innan ramma þeirra kvaða sem á því hvíla.
  •  Sjá um viðhald og endurbætur húsnæðisins m.t.t. þeirrar starfsemi.

Garðabær hefur mikinn áhuga á að húsnæðið gangi í endurnýjun lífdaga hvað varðar endurbætur og gott viðhald og að það sé gætt nýju lífi með öflugri starfsemi sem tekur tillit til umhverfisins og íbúa í nágrenninu.

Eingöngu er hér um markaðskönnun (RFI) að ræða, til að afla upplýsinga um hugmyndir áhugasamra aðila á markaði um nýtingu húsnæðisins og hvernig þær falla að þörfum Garðabæjar. Ekki er tryggt að markaðskönnun þessi leiði til útboðs og að taka eða taka ekki þátt í henni er ekki forsenda fyrir þátttöku í hugsanlegu síðara innkaupaferli / útboði.

Nánari upplýsingar um markaðskönnunina eru aðgengilegar á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar á vefslóðinni https://vso.ajoursystem.net/ frá og með miðvikudeginum 24. apríl 2024. Svörum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef eigi síðar en þriðjudaginn 14. maí 2024, kl. 14:00.