Skólamálsverðir í grunn- og leikskólum Garðabæjar 2025-2029

07. apr. 2025

Garðabær óskar eftir tilboðum í framleiðslu og framreiðslu á mat og frágang eftir máltíðir fyrir grunn- og leikskóla Garðabæjar fyrir árin 2025 til 2029.

Um er að ræða fimm grunnskóla, sjö leikskóla, einn grunn- og leikskóla og Alþjóðaskólann. Garðabæ er skipt upp í þrjú hverfi í útboðinu, bjóðandi hefur val um að bjóða í eitt, tvö eða öll þrjú hverfin.

Útboðsgögnin eru aðgengileg á vefslóð útboðsins: https://utbodsgatt.is/gardabaer/skolamalsverdir-i-grunn-og-leikskolum-2025-2029

Tilboðsfrestur er til 12. maí 2025 kl. 11:00.