Stækkun Tónlistarskóla Garðabæjar
Auglýst er útboð vegna innkaupa á uppsteypu og fullnaðarfrágangi við stækkun aðalbyggingar Tónlistarskólans í Garðabæ.
Garðabær stendur að útboði þessu vegna innkaupa á uppsteypu og fullnaðarfrágangi við stækkun aðalbyggingar Tónlistarskólans í Garðabæ að Kirkjulundi 11.
Hér er um útboð á fullgerðri viðbyggingu að ræða, bæði utanhúss sem innan.
Um almennt útboð er að ræða, sbr. 34. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Gögn verða aðgengileg á vefsvæði útboðsins https://www.ntibidco.com frá og með föstudeginum 30. janúar 2026 kl 16:00.
Athugið: Þann 30. janúar sl. var auglýst útboð Garðabæjar „Stækkun Tónlistarskóla Garðabæjar“. Í auglýsingunni kom fram að um almennt útboð væri að ræða sem auglýst væri á Evrópska efnahagssvæðinu. Texta sama efnis er einnig að finna á bls. 4 undir kafla 0.1.0 Almenn lýsing og heimilisfang umsjónaraðila útboðs, í útboðsskilmálum og í lýsingu fyrir útboðið.
Hið rétta er að um almennt útboð er að ræða sem er undir erlendum útboðsmörkum (viðmiðunarfjárhæðum) og útboð því ekki auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Þetta leiðréttist hér með.
