Þjónusta og viðhald gatnalýsingar

15. okt. 2021

Sveitarfélögin Garðabær og Hafnarfjörður ásamt Vegagerðinni óska eftir tilboðum í: „Þjónustu og viðhald gatnalýsingar“

Sveitarfélögin Garðabær og Hafnarfjörður ásamt Vegagerðinni óska eftir tilboðum í :

„Þjónustu og viðhald gatnalýsingar“

Verkið felur í sér þjónustu og viðhald á allri gatnalýsingu í sveitarfélögunum ásamt útskiptingu lampa og færslu á búnaði úr dreifistöðvum. Á svæðinu eru þrír eigendur á gatnalýsingarkerfinu þ.e. Garðarbær, Hafnarfjörður og Vegagerðin og nær þessi samningur yfir kerfi þeirra allra bæði á veitusvæði HS Veitna og Orku náttúrunnar. Gatnalýsingarkerfið samanstendur af dreifiskápum, jarðstrengjum, staurum og lömpum.

Samningur nær til þriggja ára með möguleika á framlengingu í tvö skipti, eitt ár í senn. Frávikstilboð verða ekki leyfð.

Útboðsgögn verða afhent í tölvupósti í gegnum ráðgjafa verkkaupa, gudjon@liska.is og verður hægt að nálgast gögn til og með 16. nóvember 2021.

Tilboðum ásamt umbeðnum gögnum skal skila rafrænt í tölvupósti til gudjon@liska.is. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og bjóðendur eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.

Skilafrestur tilboðs er til kl. 11.00 miðvikudaginn 24. nóvember 2021

Opnun tilboða fer fram hjá Lisku í Ármúla 24. Við opnun tilboða verða lesin upp nöfn bjóðenda og heildarverð af tilboðseyðublaði.