Útboð -Álftanes, miðsvæði- Skólpdælustöð-Umsjón og eftirlit verkframkvæmda

31. mar. 2021

ÚTBOÐ - Álftanes, Miðsvæði, Svæði 1 – Breiðamýri – Skólpdælustöð - Umsjón og eftirlit verkframkvæmda.

Fyrir hönd Sveitafélagsins Garðabæjar er óskað eftir tilboðum í verkið:

Álftanes, Miðsvæði, Svæði 1 – Breiðamýri – Skólpdælustöð - Umsjón og eftirlit verkframkvæmda.

Nýsamþykkt deiliskipulag fyrir Breiðumýri á Álftanesi gerir ráð fyrir uppbyggingu á níu 1-3 hæða fjölbýlishúsakjörnum á um 10,9 hektara svæði. Ný verkframkvæmd felur í sér uppbyggingu á nýju fráveitukerfi svæðisins og er bygging skólpdælustöðvarinnar hluti af því. Ný dælustöð leysir af núverandi skólpdælustöð sem verður aftengd og rifin.

Helstu magntölur og verkþættir eru:

  • Jarðvinna
  • Gröftur 4.550 m3
  • Fylling 2.250 m3
  • Burðarvirki
  • Steinsteypa 125 m3
  • Steinsteypumót 675 m3
  • Járnbending 21.000 kg
  • Stálvirki, vinnupallar og lok 1.200 kg
  • Fráveita
  • Fráveitulagnir 80 m
  • Vélbúnaður
  • Uppsetning á skólpdælum 2 stk
  • Uppsetning og smíði á pípum
  • Rafbúnaður og raflagnir
  • Frárennslis-, neysluvatns- og hitalagnir
  • Loftræsikerfi
  • Innan- og utanhúsfrágangur
  • Fullnaðarfrágangur á lóð

Útboðsgögn má nálgast á útboðsvef Garðabæjar frá og með miðvikudeginum 31. mars.

Tilboð verða opnuð á hjá Verkís verkfræðistofu, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík, fimmtudaginn 15. apríl 2021, kl. 10.00 og skulu tilboð send inn með rafrænum hætti. 

Útboðsgögn