Útboð: Álftanes miðsvæði, svæði 1 - Breiðamýri, gatnagerð og lagnir - eftirlit

20. mar. 2020

Garðabær, Veitur ohf, HS Veitur, Gagnaveita Reykjavíkur ehf. og Míla ehf. óska eftir tilboðum í eftirlitsverkið: Álftanes miðsvæði, svæði 1 - Breiðamýri, gatnagerð og lagnir - eftirlit.

Garðabær, Veitur ohf, HS Veitur, Gagnaveita Reykjavíkur ehf. og Míla ehf. óska eftir tilboðum í eftirlitsverkið: Álftanes miðsvæði, svæði 1 - Breiðamýri, gatnagerð og lagnir - eftirlit. 


Eftirlitsverkið felst í því að hafa eftirlit fyrir Garðabæ, HS Veitur hf., Veitur ohf., Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. og Mílu ehf. með útboðsverkinu: Álftanes, Miðsvæði, Svæði 1 - Breiðamýri, gatnagerð og lagnir. Í útboðsverkinu er um að ræða gatna- og stígagerð, bílastæði, lagnavinnu og ofanvatnsrásir vegna uppbyggingar á nýju íbúðahverfi í Breiðumýri á Álftanesi. Verktakinn skal einnig annast alla vinnu við lagnir veitufyrirtækja á svæðinu.

Gerðar eru kröfur um að eftirlitsaðili hafi góða þekkingu og reynslu af sambærilegum verkum. Eftirlitsaðili skal annast allar nauðsynlegar mælingar og mæla inn allar lagnir veitufyrirtækja.

Eftirlitsverkið skal vinna samkvæmt útboðs- og verklýsingu auk verksamninga og annarra fylgigagna samnings um ofangreint útboðsverk.

Útboðsverkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 15. ágúst 2020. Eftirlitsaðili skal standa að fullu við sínar skuldbindingar eigi síðar en 1. nóvember 2020.

Útboðsgögn má nálgast hér á vef Garðabæjar, gardabaer.is, frá og með mánudeginum 23. mars.

Tilboð verða opnuð hjá Verkís hf., Ofanleiti 2, 103 Reykjavík, þriðjudaginn 7. apríl 2020, kl. 10:00. Vegna samkomubanns verður ekki boðið upp á að opna tilboðin að viðstöddum bjóðendum heldur verður opnunarfundargerð send út á alla bjóðendur að strax að opnun tilboða lokinni. 

Útboðsgögn