Útboð: Eskiás - Stórás, gatnagerð og lagnir - eftirlit

16. mar. 2020

Garðabær, Veitur ohf, HS Veitur, Gagnaveita Reykjavíkur ehf. og Míla ehf. óska eftir tilboðum í eftirlitsverkið: Eskiás - Stórás, gatnagerð og lagnir - eftirlit.

Garðabær, Veitur ohf, HS Veitur, Gagnaveita Reykjavíkur ehf. og Míla ehf. óska eftir tilboðum í eftirlitsverkið: Eskiás - Stórás, gatnagerð og lagnir - eftirlit.

Eftirlitsverkið felst í því að hafa eftirlit fyrir Garðabæ, HS Veitur hf., Veitur ohf., Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. og Mílu ehf. með útboðsverkinu: Eskiás - Stórás, gatnagerð og lagnir. Útboðsverkið felst í jarðvegsskiptum fyrir götum, bílastæðum, stígum og stéttum ásamt vinnu við lagnir veitufyrirtækja.

Gerðar eru kröfur um að eftirlitsaðili hafi góða þekkingu og reynslu af sambærilegum
verkum. Eftirlitsaðili skal annast allar nauðsynlegar mælingar og mæla inn allar lagnir veitufyrirtækja.

Eftirlitsverkið skal vinna samkvæmt útboðs- og verklýsingu auk verksamninga og annarra fylgigagna samnings um ofangreint útboðsverk.

Útboðsverkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2020. Eftirlitsaðili skal standa að fullu við sínar skuldbindingar eigi síðar en 1. nóvember 2020.

Útboðsgögn má nálgast hér á vef Garðabæjar, gardabaer.is, frá og með þriðjudeginum 17. mars.

Tilboð verða opnuð hjá Mannvit hf., Urðarhvarfi 6, 203 Kópavogi, þriðjudaginn 31. mars 2020, kl. 10:00 að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.

Útboðsgögn