Útboð - Krókur Gatnagerð og lagnir - eftirlit

14. okt. 2022

Garðabær, Veitur ohf, HS Veitur, Ljósleiðarinn ehf. og Míla ehf. óska eftir tilboðum í eftirlitsverkið: Álftanes miðsvæði, svæði 2 - Krókur, gatnagerð og lagnir - eftirlit.

ÚTBOÐ
ÁLFTANES, MIÐSVÆÐI

Svæði 2 – Krókur
Gatnagerð og lagnir
Eftirlit

Garðabær, Veitur ohf, HS Veitur, Ljósleiðarinn ehf. og Míla ehf. óska eftir tilboðum í eftirlitsverkið: Álftanes miðsvæði, svæði 2 - Krókur, gatnagerð og lagnir - eftirlit.

Eftirlitsverkið felst í því að hafa eftirlit fyrir Garðabæ, HS Veitur hf., Veitur ohf., Ljósleiðarann ehf. og Mílu ehf. með útboðsverkinu: Álftanes, Miðsvæði, Svæði 2 - Krókur, gatnagerð og lagnir. Í útboðsverkinu er um að ræða gatna- og stígagerð, lagnavinnu og ofanvatnsrásir vegna uppbyggingar á nýju íbúðahverfi við Gásamýri og Svanamýri á Álftanesi.

Gerðar eru kröfur um að eftirlitsaðili hafi góða þekkingu og reynslu af sambærilegum verkum. Eftirlitsaðili skal annast allar nauðsynlegar mælingar og mæla inn allar lagnir veitufyrirtækja.

Eftirlitsverkið skal vinna samkvæmt útboðs- og verklýsingu auk verksamninga og annarra fylgigagna samnings um ofangreint útboðsverk.

Útboðsverkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 30. júní 2023. Eftirlitsaðili skal standa að fullu við sínar skuldbindingar eigi síðar en 30. september 2023.
 
Útboðsgögn má nálgast hér fyrir neðan á útboðsvef Garðabæjar. Útboðsgögn framkvæmdaverksins er einnig að finna á útboðsvef Garðabæjar.

Tilboð skulu hafa borist rafrænt á utbod@verkis.is, þriðjudaginn 1. nóvember 2022, kl. 14.00, sjá nánar í kafla 0.4.6 í útboðs- og verklýsingu.

Útboðsgögn