Útboð - malbikun gatna
Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Urriðaholt – Malbikun gatna 2018
Verkið felst í jarðvegsskiptum, upphækkun brunna og niðurfalla, malbikun gatna og gerð kantsteina í nýju íbúðahverfi í Urriðaholti. Verkinu skal lokið fyrir 15. september 2018.
Helstu magntölur eru:
Heflun og
þjöppun yfirborðs 13.500 m2
Efra
burðarlag 1.300 m3
Malbikun 16.300 m2
Gerð
kantsteina 700 m
Upphækkun á
brunnum 100 stk
Upphækkun á
niðurföllum 31 stk
Útboðsgögn er hægt að nálgast hjá Eflu verkfræðistofu, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík.
Tilboð verða opnuð hjá Eflu verkfræðistofu, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, fimmtudaginn 7. júní 2018, kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.